Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Sjúkraþjálfari - Heilsugæslan Hlíðum

Heilsugæslan Hlíðum leitar að metnaðarfullum og áhugasömum sjúkraþjálfara til starfa við hreyfiseðla- og stoðkerfismóttöku. Um er að ræða 20% ótímabundið starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.

Í Hlíðum starfar öflugur hópur sérhæfðs og metnaðarfulls starfsfólks. Við leggjum áherslu á gott og hvetjandi starfsumhverfi þar sem fagmennska, samstarf og góður starfsandi eru í fyrirrúmi og starfsfólk fær svigrúm til að sýna frumkvæði og sjálfstæði í starfi.

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins veitir íbúum aðgengilega, samfellda og alhliða heilbrigðisþjónustu. Hjá okkur starfar fjölbreyttur hópur fagfólks þar sem áhersla er lögð á öflugt þverfaglegt samstarf og sameiginlegt markmið um að stuðla að bættri heilsu og vellíðan í samfélaginu.

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins).

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Tekur á móti skjólstæðingum sem hafa fengið uppáskrifaðan hreyfiseðil frá heilbrigðisstarfsmanni og framkvæmir viðeigandi mælingar, setur upp hreyfiáætlun í samráði við skjólstæðing og fylgir henni eftir
  • Metur, greinir og veitir ráðgjöf varðandi stoðkerfisvanda skjólstæðinga
  • Skráir og fylgir eftir meðferð skjólstæðinga
  • Nýtir faglega þekkingu til að forgangsraða og leysa viðfangsefni
  • Veitir fræðslu til starfsfólks heilsugæslunnar
  • Leiðbeinir samstarfsfólki
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfi frá embætti landlæknis til að starfa sem sjúkraþjálfi
  • Þriggja ára starfsreynsla æskileg
  • Þekking á áhugahvetjandi samtalstækni
  • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð íslensku og enskukunnátta
Реклама створена 1. October 2026
Кінцевий термін подання заявки15. October 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Досконалий
АнглійськаАнглійська
вимагається
Досконалий
Розташування
Skógarhlíð 18, 105 Reykjavík
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.ПроактивнийPathCreated with Sketch.АмбіціїPathCreated with Sketch.СумліннийPathCreated with Sketch.Незалежність
Робоче середовище
Професії
Мітки роботи