Alfa Framtak
Alfa Framtak

Sérhæfðar fjárfestingar

Alfa Framtak er rekstraraðili sérhæfðra sjóða. Við fjárfestum í fjölbreyttum fyrirtækjum, styðjum við vöxt og leiðum umbreytingar. Við vinnum náið með stjórnendum, athafnafólki og fyrirtækjaeigendum sem vilja ná því besta út úr sínum rekstri. Markmið okkar er að hámarka verðmæti fjárfestinga og skila fyrirtækjum af sér í betra ástandi við sölu og þannig skilja eftir okkur jákvæð fótspor í íslensku viðskiptalífi.

Við leitum nú að liðsauka til þess að styrkja teymið. Að þessu sinni munum við horfa jafnt til einstaklinga með reynslu og þroska til þess að stýra verkefnum sem og reynsluminni umsækjenda sem hafa allt sem þarf til að vaxa og þroskast í ábyrgð.

Meðal þess sem viðkomandi mun vinna að er gagnaöflun og ítarlegar greiningar á fjárfestingarkostum, verðmöt, kynningarefni og skýrslur til hluthafa. Að auki koma allir starfsmenn að verkefnum sem tengjast rekstri fjárfestingaeigna okkar.

Einlægur áhugi á viðskiptum og rekstri fyrirtækja er forsenda og reynsla af fjármálamörkuðum er mikill kostur. Færni á sviði fjárhagslegra greininga og gerð kynninga er mikilvægur eiginleiki. Tæknilegur skilningur og hagnýting gervigreindar er kostur.

Viðkomandi þarf að taka frumkvæði í sínum störfum, vera tilbúin(n) að leggja mikið á sig við nákvæmni upplýsinga og hafa getu til að miðla niðurstöðum í bæði ræðu og riti.

Hjá Alfa Framtak starfar samheldinn hópur starfsmanna sem kappkostar að nýta rödd og þekkingu allra við borðið. Við leitum því að aðila sem er í senn með metnað og auðmýkt til þess að starfa með fjölbreyttum hópi starfsfólks, fjárfesta og stjórnenda.


Umsóknarfrestur er til og með 17. maí næstkomandi.

Óskað er eftir ferilskrá og kynningarbréfi (í einu skjali) sem útlistar hæfni og getu til þess að lenda hlaupandi í hröðu umhverfi.

Nánari upplýsingar veitir:
Kristján Pétur Sæmundsson hjá Brú Talent, [email protected]

Реклама створена 8. May 2026
Кінцевий термін подання заявки17. May 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Рідна мова
АнглійськаАнглійська
вимагається
Досконалий
Розташування
Lágmúli 9, 108 Reykjavík
Тип роботи
Професії
Мітки роботи