Landsnet hf.
Landsnet hf.
Landsnet hf.

Sérfræðingur í mannauðsmálum

Vilt þú hafa áhrif á framtíð mannauðsmála í einu mikilvægasta innviðafyrirtæki landsins?

Við hjá Landsneti viljum vera í farabroddi í mannauðsmálum, þar sem gögn, tækni og mannleg nálgun vinna saman að því að skapa framúrskarandi starfsumhverfi. Við leitum að drífandi og tæknilega sterkum sérfræðingi sem hefur áhuga á að þróa og bæta mannauðsferla með framtíðina að leiðarljósi.

Starfið

Þú tekur virkan þátt í að móta og þróa mannauðsstarf til framtíðar, með áherslu á ráðningar, stafræna þróun, sjálfvirknivæðingu og gæðamál. Markmiðið er að bæta upplifun umsækjenda, starfsfólks og stjórnenda og auka skilvirkni í daglegu starfi.

Þú vinnur náið með mannauðsteymi og stjórnendum þvert á fyrirtækið að umbótum, þróun lausna og stefnumótun.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með ráðningum og stuðningur við stjórnendur í ráðningarferlum.
  • Þróun og umbætur á mannauðsferlum og upplifun hagaðila.
  • Utanumhald og þróun mannauðskerfa og stafrænna lausna.
  • Greiningar, árangursmælingar og eftirfylgni á lykiltölum mannauðsmála.
  • Gæðamál, mótun ferla og önnur umbótaverkefni.
  • Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur og starfsfólk.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Að minnsta kosti þriggja ára reynsla úr sambærilegu hlutverki.
  • Tæknileg færni og áhugi á stafrænum lausnum.
  • Greiningarhæfni og gagnadrifin hugsun.
  • Framúrskarandi samskiptafærni, hæfni til að vinna í teymi og miðla upplýsingum á uppbyggilegan hátt.
  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri.
Реклама створена 17. April 2026
Кінцевий термін подання заявки27. April 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Досконалий
АнглійськаАнглійська
вимагається
Досконалий
Розташування
Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík
Miðás 7A, 700 Egilsstaðir
Rangárvöllum, 603 Akureyri
Тип роботи
Робоче середовище
Професії
Мітки роботи