Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Sérfræðingur í heimilislækningum óskast á heilsugæsluna í Rangárþingi

Heilbrigðisstofnun Suðurlands leitar að metnaðarfullum og lausnamiðuðum heimilislækni til að styrkja öflugt teymi okkar í Rangárþingi. Á heilsugæslunni starfar samhentur hópur þar sem samvinna, fagmennska og hlý þjónusta eru í fyrirrúmi. Við leitum að einstaklingi sem vill taka þátt í að byggja upp farsæla og nútímalega þjónustu fyrir fjölbreytt samfélag.

Starfið býður upp á spennandi tækifæri fyrir áhugasaman lækni sem vill þróa sig áfram í faginu og vinna í hvetjandi og jákvæðu starfsumhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almennar heilsugæslulækningar og heilsuvernd 
  • Fræðsla og stuðningur við skjólstæðinga og aðstandendur 
  • Viðbragðsvaktir samkvæmt vaktaplani 
  • Virk þátttaka í þróunarverkefnum og starfsemi stofnunarinnar 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt starfsleyfi sem læknir 
  • Mjög góð íslenskukunnátta 
  • Sérfræðileyfi í heimilislækningum er æskilegt; þó er mögulegt að ráða læknir með aðra sérfræðiþekkingu 
  • Framúrskarandi samskiptafærni og hæfni í skýrri tjáningu 
  • Sjálfstæð og fagleg vinnubrögð 
  • Áreiðanleiki, jákvætt viðhorf og þjónustulund 
Реклама створена 27. March 2026
Кінцевий термін подання заявки10. April 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Рідна мова
Розташування
Árvegur 161836, 800 Selfoss
Тип роботи
Професії
Мітки роботи