HS Veitur hf
HS Veitur hf
HS Veitur hf

Rafiðnaðarmaður á Suðurnesjum

HS Veitur leitast eftir að ráða starfsmann sem býr yfir sveinsprófi í rafvirkjun eða rafveituvirkjun á veitusvið á Suðurnesjum með starfsstöð í Reykjanesbæ.

Við hvetjum áhugasama aðila, óháð kyni, til að sækja um.

Fyrir starfar öflugur hópur fagmanna að rekstri og nýframkvæmdum veitukerfa á Suðurnesjum og hvetjum við því áhugasama að sækja um og um leið opna á tækifæri til að slást í samheldin hóp fagmanna hjá framsæknu þekkingar- og þjónustufyrirtæki í veitustarfsemi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Störf við nýlagnir og viðhald veitukerfa
  • Samskipti við verktaka og viðskiptavini 
  • Önnur verkefni sem falla til í rekstri veitukerfis
  • Starfsmaður stendur bakvaktir
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hefur lokið Sveinsprófi í rafvirkjun eða rafveituvirkjun. 
  • Hefur þekkingu og reynslu af störfum í tengslum við raflagnir og eða veitukerfi.
  • Býr yfir samskiptahæfni og frumkvæði 
  • Getur unnið sjálfstætt og undir álagi 
  • Góð íslenskukunnátta og tölvufærni er skilyrði
  • Er með gilt ökuskírteini og hreint sakavottorð
Реклама створена 17. April 2026
Кінцевий термін подання заявки26. April 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Досконалий
Розташування
Brekkustígur 36, 260 Reykjanesbær
Тип роботи
Професії
Мітки роботи