

QA Automation Engineer – forritari á upplýsingatæknisviði
Við leitum að öflugum QA Automation Engineer til starfa á Upplýsingatæknisviði Arion banka. Starfið hentar einstaklingi með trausta reynslu í forritun, sem vill nýta þá hæfni til að byggja upp og viðhalda sjálfvirkum prófunum, en jafnframt taka virkan þátt í hefðbundnum virkniprófunum og útgáfuprófunum sem hluti af þróunarteymi.
QA Automation Engineer starfar innan teyma hugbúnaðarþróunnar og vinnur að því að tryggja gæði lausna frá hönnun til útgáfu, með áherslu á sjálfvirkar prófanir byggðar m.a á C#.
Arion banki er jafnframt á vegferð að nýta AI í sjálfvirknivæðingu og agent-drifna nálgun í prófunum til áhrifa í hugbúnaðarþróunarferlinu (SDLC). Við leitum því að aðila sem hefur áhuga á nýjum leiðum í prófunum, vill taka þátt í þessari vegferð og þróast með hlutverkinu – án þess að ætlast sé til sérhæfðrar reynslu á þessu sviði í upphafi.
Skilyrði:
- Háskólamenntun á sviði tölvunarfræði, verkfræði, kerfisfræði eða sambærileg menntun
- Reynsla af forritun (C# eða sambærilegt tungumál)
- Reynsla af þróun og/eða sjálfvirkum hugbúnaðarprófunum
- Góð greiningarhæfni og skipulögð vinnubrögð
Æskilegt / kostur:
- Reynsla af test automation frameworkum
- Þekking á Agile / Scrum vinnulagi
- Þekking á MS SQL
- Reynsla af Jira eða sambærilegu
- Áhugi á gæðum, stöðlum og stöðugum umbótum
Persónulegir eiginleikar
- Sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð
- Góðir samskiptahæfileikar og vilji til samstarfs í teymi
- Engineering-hugsun og áhugi á að leysa vandamál með kóða og sjálfvirkni
Ісландська
Англійська










