KPMG á Íslandi
KPMG á Íslandi
KPMG á Íslandi

Nýliðar á endurskoðunarsviði - Akureyri

KPMG á Akureyri leitar að nýliðum á endurskoðunarsvið

KPMG á Akureyri leitar að drífandi og áhugasömum einstaklingum sem vilja taka sín fyrstu skref á sviði reikningsskila og endurskoðunar. Í starfinu felst vinna að fjölbreyttum og lærdómsríkum verkefnum undir handleiðslu reyndra sérfræðinga á glænýrri skrifstofu okkar að Austursíðu 6.

Afhverju KPMG?

Öflugur stuðningur frá fyrsta degi

Nýtt starfsfólk fær góða nýliðafræðslu og persónulegan mentor sem veitir bæði faglegan og félagslegan stuðning á meðan þú aðlagast starfinu. Við bjóðum M.Acc nemendum upp á sveigjanleika í starfi samhliða námi.

Fjölbreytt verkefni og forskot með tækni

Þú færð að vinna að fjölbreyttum verkefnum á sviði endurskoðunar, reikningsskila, skatta og annarrar þjónustu fyrir viðskiptavini um allt land. Þá leggjum við mikla áherslu á að fjárfesta í hæfni starfsfólks og viljum samnýta sérþekkingu okkar með nýjustu tækni og gervigreindarlausnum í daglegum verkefnum.

Sterk liðsheild og góð vinnustaðarmenning

Verkefnin eru unnin í teymum og rík áhersla er lögð á þétt samstarf og jákvæða vinnustaðarmenningu. Við vinnum þvert á svið og með sérfræðingum okkar úr alþjóðlegu samstarfi til að tryggja breiða og faglega þjónustu.

Starfsþróunartækifæri

Hjá KPMG færðu tækifæri til að læra af löggiltum endurskoðendum og sérfræðingum, bæði á Íslandi og erlendis, og þróast í starfi í samræmi við áhuga, hæfni og getu Þá er sérstakur stuðningur í boði fyrir þau sem stefna á löggildingu til endurskoðunar.

Á heimasíðu okkar HÉR getur þú betur kynnt þér málið betur og heyrt hvað starfsfólkinu okkar finnst um starfið og vinnustaðinn.

Dæmi um verkefni og ábyrgð:

  • Endurskoðun fyrirtækja og opinberra aðila.
  • Reikningsskil og gerð ársreikninga.
  • Skattskil og tengd verkefni.
  • Aðrar tilfallandi greiningar og sérverkefni.

Hæfniskröfur:

  • Grunnnám í viðskiptafræði eða öðru námi sem nýtist (lokið eða ert að ljúka).
  • M.Acc nám – stundar, lokið eða stefnir á að hefja (mikill kostur).
  • Áhugi á reikningsskilum, endurskoðun og rekstri fyrirtækja.
  • Góð tölvufærni og greiningarhæfni.
  • Skipulögð vinnubrögð og þjónustulund.
  • Góð færni í íslensku og ensku, í ræðu og riti.

Í samræmi við markmið okkar í jafnréttismálum hvetjum við öll til að sækja um óháð kyni.

Um KPMG:

KPMG á Íslandi er hluti af alþjóðlegu ráðgjafarneti og starfrækir 12 starfsstöðvar um land allt. Um 240 sérfræðingar starfa hjá félaginu og veita þjónustu á sviði endurskoðunar, reikningsskila, skatta, lögfræði og ráðgjafar.

Við bjóðum meðal annars:

  • Fjölbreytt verkefni og tækifæri til að hafa jákvæð áhrif.
  • Heilsueflandi vinnustaður og aðgangur að líkamsræktarstyrk og samgöngustyrk.
  • Golfklúbbur með aðgengi að völlum víðs vegar um landið.
  • Fyrsta flokks mötuneyti með fjölbreyttu og hollu fæði.
  • 4 tímar á ári hjá sálfræðingi eða öðrum ráðgjöf sem styðja við andlega heilsu í gegnum Kara velferðartorg.
  • Sérstök stuðningsúrræði fyrir verðandi og nýbakaða foreldra ásamt sérstökum fæðingarorlofsstyrk.
  • Sveigjanleiki til að vinna frá mismunandi starfsstöðvum og að heiman þegar við á.
  • Einn launaður dagur á ári til sjálfboðavinnu.
  • Og margt fleira.

Umsóknarfrestur er til og með 10. maí 2026.

Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út á heimasíðu KPMG (sækja um hér til hliðar).

Nýliðar hefja störf í september 2026

Nánari upplýsingar veitir Hildur Steinþórsdóttir sérfræðingur í mannauðsmálum ([email protected])

Реклама створена 27. April 2026
Кінцевий термін подання заявки10. May 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Рідна мова
АнглійськаАнглійська
вимагається
Досконалий
Розташування
Austursíða 2, 603 Akureyri
Тип роботи
Професії
Мітки роботи
Більше робочих місць (1)