

Námsstaða ljósmóður í fósturgreiningu
Laus er til umsóknar námsstaða ljósmóður í fósturgreiningu á meðgönguvernd, fósturgreiningu og bráðaþjónustu kvennadeilda. Staðan er til eins árs og miðað er við 80-100% starfshlutfall. Ráðið verður í stöðuna frá 1. september 2026.
Kennsla og aðlögun fer fram á deildinni sem og með námskeiðum erlendis frá. Gert er ráð fyrir að það taki eitt ár í 100% starfi að fá réttindi til að framkvæma fósturgreiningar.
Eftir að formlegri námsstöðu lýkur er gert ráð fyrir a.m.k. einu ári í starfi á fósturgreiningardeild þar sem nauðsynleg viðbótarmenntun og þjálfun fer fram. Ljósmóðir vinnur þá sjálfstætt en með stuðningi eftir þörfum. Að þessu starfsári loknu telst ljósmóðir fullnuma í fósturgreiningu. Athugið að sækja þarf sérstaklega um stöðu á deildinni eftir að fyrsta námsári lýkur.
Ljósmæður deildarinnar sinna fósturgreiningu hjá konum á meðgöngu. Náið samstarf er á milli ljósmæðra og lækna á deildinni.
Starf fósturgreinandi ljósmóður er líkamlega krefjandi og skjánotkun er mikil og stöðug. Fjöldi koma í fósturgreiningu eru í kringum 11-12 þúsund á ári hverju. Starfsemi deildarinnar felst í þjónustu við konur og fjölskyldur þeirra á meðgöngu.
Ісландська




































