Apótek Vesturlands ehf
Apótek Vesturlands ehf

Lyfjafræðingur óskast til starfa í Borgarnesi

Apótek Vesturlands leitar að öflugum og metnaðarfullum lyfjafræðingi til starfa í Borgarnesi.

Um er að ræða 100% starf, en annað starfshlutfall kemur einnig til greina eftir samkomulagi.

Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að starfa í lifandi og fjölbreyttu starfsumhverfi þar sem fagmennska, góð þjónusta og jákvæður starfsandi eru í fyrirrúmi.

Við bjóðum upp á:

  • Fjölbreytt og áhugavert starf

  • Góðan starfsanda og samhentan hóp

  • Sveigjanleika í starfshlutfalli eftir samkomulagi

  • Persónulegt og fjölskylduvænt starfsumhverfi

Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband og kynna sér starfið nánar.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Svandís Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Apóteks Vesturlands, á netfanginu [email protected]

Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fagleg ráðgjöf og þjónusta við viðskiptavini

  • Afgreiðsla lyfseðla og sala lyfja

  • Ráðgjöf um rétta og örugga notkun lyfja

  • Þátttaka í daglegum rekstri og verkefnum apóteksins

  • Samvinna við samstarfsfólk og stuðla að góðum starfsanda

  • Að tryggja fagleg og vönduð vinnubrögð í samræmi við gildandi kröfur og reglur

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf í lyfjafræði og gilt starfsleyfi sem lyfjafræðingur
  • Rík þjónustulund og góð samskiptahæfni

  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

  • Frumkvæði, metnaður og ábyrgð í starfi

  • Hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í góðri samvinnu við aðra

  • Áhugi á faglegri ráðgjöf og velferð viðskiptavina

Реклама створена 20. October 2026
Кінцевий термін подання заявки30. November 2026
Мовні вимоги
No specific language requirements
Розташування
Digranesgata 6, 310 Borgarnes
Тип роботи
Професії
Мітки роботи