Lyfja
Lyfja
Lyfja

Lyfja leitar að lyfjafræðingum í Lyfjuliðið

Við leitum að sjálfstæðum og metnaðarfullum lyfjafræðingum sem vilja starfa í verslunum Lyfju með faglegu og öflugu teymi. Hjá okkur færð þú tækifæri til að sinna mikilvægu hlutverki í heilbrigðisþjónustu, þar sem þú veitir lyfjafræðilega ráðgjöf og getur haft áhrif á heilsu og líðan viðskiptavina.

Hlutverk og ábyrgð:

  • Fagleg ráðgjöf um lyf og notkun þeirra
  • Afgreiðsla lyfseðla eftir skýrum verkferlum í góðu samstarfi við teymið
  • Stuðningur við öflugt teymi í apótekum og útibúum
  • Umsjón með pöntunum og lyfjabirgðum
  • Að tryggja góða þjónustuupplifun

Hvaða hæfni þarft þú að hafa?

  • Háskólapróf í lyfjafræði og gilt starfsleyfi
  • Ríka þjónustulund og góða samskiptafærni
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og lausnamiðaða hugsun
  • Áreiðanleika, skipulag og drifkraft í fjölbreytt og faglegt teymisstarf
  • Áhuga á heilbrigði og vellíðan

Starfið

Um flakkarastarf er að ræða þar sem þú getur starfað á mismunandi stöðum eftir áhuga og þörfum, bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Starfið býður upp á fjölbreytni, sveigjanleika og tækifæri til að kynnast starfsemi Lyfju um land allt.

Hvers vegna Lyfja?

Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að auka lífsgæði og efla heilsu. Við rekum 42 verslanir hringinn í kringum landið auk Lyfju Heyrnar og lyfjaskömmtunar. Hjá okkur starfar öflugur hópur heilbrigðismenntaðs og sérþjálfaðs starfsfólks sem styður við viðskiptavini í þeirra heilsueflingu, vinnur að vellíðan og tryggir lyfjaöryggi. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu og stöðuga nýsköpun.

Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Starfsfólk Lyfju nýtur góðra kjara á vörum og þjónustu hjá ELKO, Krónunni, Lyfju og N1, sem öll eru hluti af Festi hf.

Nánari upplýsingar veitir Anna Sólmundsdóttir, lyfjafræðingur og sérfræðingur á mannauðssviði á [email protected]

Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Реклама створена 25. March 2026
Кінцевий термін подання заявкиКінцевого терміну немає
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Досконалий
АнглійськаАнглійська
вимагається
Високий
Тип роботи
Професії
Мітки роботи