Akureyri
Akureyri
Akureyri

Leikskólinn Hagasteinn - starfsfólk í leikskóla

Leikskólinn Hagasteinn óskar eftir að ráða starfsfólk. Um er að ræða ótímabundin störf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf frá 1. ágúst 2026.

Í leikskólanum Hagasteini verður lögð áhersla á Jákvæðan aga, hæglæti, barnasáttmálann, umhverfismennt og vellíðan með það að markmiði að skapa gott náms - og starfsumhverfi.

Þar sem um nýjan leikskóla er að ræða mun starfsfólk taka þátt í að byggja upp starf skólans frá grunni og því er um einstakt tækifæri að ræða fyrir metnaðarfulla einstaklinga.

Sýn okkar er: faglegur skóli, starfsánægja og fagleg forysta með gleði, traust og virðingu að leiðarljósi.

Næsti yfirmaður er deildarstjóri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna að uppeldi og menntun barna. Fylgjast vel með velferð þeirra og hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
  • Taka þátt í gerð skólanámskrár og mati á starfsemi leikskólans undir stjórn deildastjóra og eða skólastjóra.
  • Taka þátt í faglegu starfi skólans undir stjórn deildarstjóra og eða skólastjóra.
  • Vinna í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna. Sitja fundi, sem haldnir eru á vegum leikskólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Óskað er eftir sjálfstæðum, ábyrgum og jákvæðum einstaklingum.
  • Mikilvægt er að þeir eigi auðvelt með mannleg samskipti og séu tilbúnir til að takast á við skemmtilegt og krefjandi starf með börnum.
  • Viðkomandi þarf að vera sveigjanlegur í starfi og vera tilbúnir að ganga í ýmis störf.
  • Reynsla af starfi með börnum er kostur.
  • Gott vald á íslensku, bæði í rituðu og töluðu máli er nauðsynleg.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Реклама створена 17. April 2026
Кінцевий термін подання заявки10. May 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Досконалий
Розташування
Geislagata 9, 600 Akureyri
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.AdaptabilityPathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.ПроактивнийPathCreated with Sketch.КреативністьPathCreated with Sketch.ПозитивністьPathCreated with Sketch.ВикладанняPathCreated with Sketch.Людські стосункиPathCreated with Sketch.АмбіціїPathCreated with Sketch.PrecisionPathCreated with Sketch.ІновативнийPathCreated with Sketch.НезалежністьPathCreated with Sketch.ПлануванняPathCreated with Sketch.ПунктуальністьPathCreated with Sketch.ГнучкістьPathCreated with Sketch.Командна роботаPathCreated with Sketch.Обслуговування клієнтівPathCreated with Sketch.Терпіння
Професії
Мітки роботи