Héðinn
Héðinn er leiðandi fyrirtæki í málmiðnaði og véltækni með yfir 100 ára reynslu af þjónustu við sjávarútveg, stóriðju og orkuiðnað, bæði hérlendis og erlendis.
Hjá fyrirtækinu starfa um 100 manns við fjölbreytt störf, allt frá hönnun að fullbúnum vörum ásamt viðhalds- og þjónustuverkefnum um allan heim.
Héðinn leitast við að veita samkeppnishæfa þjónustu á öllum sviðum og leggur mikið upp úr góðri starfsaðstöðu og aðbúnaði. Að auki leggur fyrirtækið áherslu á að fylgja framþróun í tækjakosti eins og unnt er til að auðvelda störf og auka gæði og framleiðni.
Starfsemin snýst einkum um fjölbreytta málmsmíði, vélaviðgerðir, endurnýjun og viðhald og helstu viðskiptavinir eru sjávarútvegsfyrirtæki, orkufyrirtæki, stóriðjufyrirtæki, sveitarfélög og önnur málmiðnaðarfyrirtæki.
Stærstu verkefnin í dag eru fyrir sjávarútveginn og stóriðju. Þessi verkefni spanna allt frá því að reisa fiskimjölsverksmiðjur á Íslandi eða úti í heimi yfir í umhverfisvæna nýsköpun, viðgerðir og smíði.
Héðinn rekur fimm starfsstöðvar en meginþorri starfsfólks starfar í höfuðstöðvum félagsins við Gjáhellu. Aðrar starfsstöðvar eru í Íshellu,þjónustuverkstæði á Grundartanga og útibú á Akureyri og í Noregi.
Húsakynnin við Gjáhellu eru 8.000 fermetrar og lóðin 20.000 fermetrar. Í húsinu er mötuneyti fyrir starfsfólk og glæsileg líkamsræktaraðstaða.
Að jafnaði starfa um 100 hjá Héðni. Meðal starfsgreina má nefna stálsmiði, rennismiði, tæknifræðinga, vélstjóra, vélvirkja, verkfræðinga, stjórnendur, skrifstofufólk og matreiðslumenn.
Lagerstjóri
Héðinn hf, leiðandi fyrirtæki í málmiðnaði og véltækni með rúma aldarreynslu af þjónustu við sjávarútveg, stóriðju og orkuiðnað leitast nú eftir að ráða lagerstjóra.
Lagerstjóri Héðins hefur yfirumsjón með starfsemi lagers og sér til þess að birgðahald lagersins sé rétt og uppfylli þarfir starfsmanna.
Um er að ræða fullt starf frá 7:30-15:45 alla virka daga og til 14:00 á föstudögum.
Við leitum að skipulögðum og nákvæmum aðila sem hefur auga fyrir nýjum tækifærum og leiðir til betrumbæta verkferla.
Lögð er áhersla á frumkvæði, vönduð vinnubrögð og jákvæðni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg umsjón með birgðahaldi og vöruflæði lagers.
- Skipulag lagers.
- Tiltekt og afgreiðsla pantana ásamt starfsmanni lagers.
- Samskipti og þjónusta við viðskiptavini og samstarfsfólk.
- Vörutalningar.
- Samninga- og tilboðsgerð.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
- Góð almenn tölvukunnátta
- Mjög góð íslenskukunnátta
- Bílpróf skilyrði
- Lyftarapróf er kostur
- Samskiptahæfni og þjónustulund
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Реклама створена 19. September 2024
Кінцевий термін подання заявки29. September 2024
Мовні вимоги
ІсландськаДосконалий
Розташування
Gjáhella 4, 221 Hafnarfjörður
Тип роботи
Навички
ПлануванняОбслуговування клієнтів
Робоче середовище
Професії
Мітки роботи
Більше робочих місць (1)
Схожі вакансії (12)
Starfsmaður á lager og í búvöruverslun
SS - Sláturfélag Suðurlands
Kranamaður óskast - We are looking for a crane operator
Einingaverksmiðjan
Starf á lager
Embla Medical | Össur
Lagerstarfsmaður - Lagnaverslun BYKO Breidd
Byko
Starfsmaður á verslun/lager í Hafnarfirði
Ferro Zink hf
Sendill og lagerstarf
AB Varahlutir
Sala og afgreiðsla
Vatnsvirkinn ehf
Gæðaeftirlit
Innnes ehf.
Lagerstarfsmaður SportsDirect
Sports Direct Lindum
Framleiðsla / Lager
Vogue
100% eða 50% starf til áramóta.
Partýbúðin
Lagerstarf
GA Smíðajárn