Fjarðabyggð
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð

Kennsluráðgjafi hjá Fjarðabyggð með áherslu á leikskóla

Hefur þú reynslu af kennslu og ráðgjöf til leik- og grunnskóla? Hefur þú brennandi áhuga á menntamálum og velferð barna? Vilt þú taka þátt í öflugu skólastarfi í Fjarðabyggð? Þá erum við að leita að þér!

Fjarðabyggð er kraftmikið samfélag þar sem lögð er áhersla á velferð og málefni allra íbúa. Á fjölskyldusviði Fjarðabyggðar er lögð áhersla á þverfaglega vinnu og teymisstarf við úrlausn fjölþættra verkefna.

Starf kennsluráðgjafa skólaþjónustu fjölskyldusviðs heyrir undir stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu. Kennsluráðgjafi í skólaþjónustu veitir faglega ráðgjöf og stuðning til nemenda, foreldrar og starfsfólks skóla með það að markmiði efla skóla sem faglegar stofnanir til að leysa flest þau viðfangsefni sem upp koma í skólastarfi. Kennsluráðgjafi er virkur þátttakandi í samstarfi skóla og stefnumótun í fræðslumálum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ráðleggur kennurum varðandi kennsluaðferðir, námsmat og einstaklingsmiðað nám.
  • Veitir stuðning við innleiðingu á nýjum námskrám, kennslusaðferðum og stefnumótun.
  • Aðstoðar við skimanir, þróun á námsefni og stuðningsáætlunum fyrir nemendur með fjölbreyttar þarfir.
  • Er til ráðgjafar í málum barna í samþættri þjónustu og tekur þátt í teymisvinnu.
  • Starfar sem hluti af teymum skólaþjónustu og samþættingar.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu.
  • Kennslureynsla úr leikskóla.
  • Viðbótarnám í sérkennslu eða annað sérnám sem nýtist í starfi.
  • Þekking á málefnum skólaþjónustu og samþættingar æskileg.
  • Góð tölvukunnátta.
  • Geta til að taka þátt í og stjórna breytingum.
  • Áhugi á þátttöku í teymisstarfi og umbótaverkefnum.
  • Sjálfstæð vinnubrögð
  • Skiplagshæfileikar, frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
  • Mjög gott vald á íslenskri tungu
Реклама створена 14. September 2026
Кінцевий термін подання заявки15. October 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Досконалий
Розташування
Hafnargata 2, 730 Reyðarfjörður
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.ПроактивнийPathCreated with Sketch.ВчительPathCreated with Sketch.НезалежністьPathCreated with Sketch.Командна робота
Професії
Мітки роботи