

Járnavinna í einingaframleiðslu / Steel fixer in a precast concrete production
Við óskum eftir öflugum mönnum með reynslu af járnavinnu, járnaklippingum og járnabeygingum. Við erum frábæran mannskap og góðan liðsanda sem við leggjum mikið upp úr. Framleiðslan fer öll fram innandyra í glæsilegri nýrri verksmiðju að Koparhellu 5 í Hafnarfirði.
Vinnutími er frá 7:30 til 16:00 virka daga. Vinna hefst þó oft kl. 6:00. Unnið er annan hvern laugardag að jafnaði frá kl. 6/7:30 til 12:00/14:00, en fer það eftir verkefnastöðu hverju sinni hvort unnið sé um helgar.
Einingaverksmiðjan er staðsett á völlunum í Hafnarfirði í nýrri og glæsilegri verksmiðju.
Einingaverksmiðjan sérhæfir sig í og framleiðir forsteyptar lausnir fyrir breiðan hóp viðskiptavina og hefur byggt upp gríðarlega sérþekkingu og áratuga verkkunnáttu. Hjá fyrirtækinu starfa um 80 starfsmenn.
- Framleiðsla á forsteyptum einingum
- Járnabindingar
- Járnabeygingar
- Járnaklippingar
- Reynsla af lestri teikninga
- Titekt á efni og frágangur
- Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni
- Reynsla af sambærilegu starfi, þ.e járnavinnu
- Reynsla af lestri teikninga og járnaklippingum og beygingum
- Reynsla af mótauppslætti og steypuvinnu kostur
- Frumkvæði, fagmennska og sjálfstæð vinnubrögð
- Jákvætt viðmót og góð samskiptafærni
- Hæfni til að starfa í teymi og aðlagast breytilegum aðstæðum
- Góð enskukunnátta
- Ökuréttindi kostur












