Ofar
Ofar
Ofar

Innviðir framtíðarinnar - Ofar leitar að sérfræðingum í gagnaverum

Viltu vera hluti af innviðum framtíðarinnar?

Við hjá Ofar leitum að framsæknum og áreiðanlegum einstaklingum til að ganga til liðs við innviðateymi fyrirtækisins sem sinnir rekstri, eftirliti og þjónustu við gagnaver víðs vegar um landið.

Starfsstöð verður í gagnaveri í Reykjanesbæ.

Þetta er spennandi tækifæri fyrir áhugasama aðila sem vilja starfa í mikilvægum og hraðvaxandi geira og þróast faglega með öflugu teymi.

Um er að ræða vaktavinnu í 24/7 rekstri, allt árið um kring, samkvæmt skilgreindu vaktafyrirkomulagi. Starfsmenn fá ítarlega þjálfun í upphafi og áframhaldandi stuðning í starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Daglegt eftirlit með búnaði, innviðum og umhverfi gagnavera 

  • Reglubundið eftirlit og umhverfisvöktun 

  • Öflun viðeigandi vottana og/eða réttinda til að starfrækja búnað 

  • Meðhöndlun, greining og eftirfylgni atvika, tilkynninga og þjónustubeiðna 

  • Framkvæmd staðlaðra verkferla og öryggisúttekta 

  • Samskipti og samvinna við birgja, þjónustuaðila og samstarfsaðila innanlands og erlendis 

  • Almenn tækniaðstoð og prófanir eftir þörfum í rekstri gagnavera 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Grunnþekking og/eða reynsla af gagnaverum, tæknilegum innviðum, net- eða rafmagnsbúnaði er kostur 

  • Frumkvæði, áreiðanleiki og geta til sjálfstæðra vinnubragða 

  • Góð samskiptahæfni og fagleg framkoma 

  • Bílpróf er nauðsynlegt 

  • Menntun í rafvirkjun eða rafeindavirkjun er kostur 

Реклама створена 22. January 2026
Кінцевий термін подання заявки15. February 2026
Мовні вимоги
No specific language requirements
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.Технологічно підкованийPathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.ПроактивнийPathCreated with Sketch.Судимості немаєPathCreated with Sketch.Людські стосункиPathCreated with Sketch.Водійські праваPathCreated with Sketch.Електронна технікаPathCreated with Sketch.ЕлектрикPathCreated with Sketch.НезалежністьPathCreated with Sketch.Пунктуальність
Професії
Мітки роботи
Більше робочих місць (1)