Fagkaup ehf
Fagkaup ehf
Fagkaup ehf

Innkaupastjóri Fagkaupa

Fagkaup leitar að öflugum innkaupastjóra til að leiða innkaupasvið fyrirtækisins. Um er að ræða spennandi starf í traustu fyrirtæki.

Innkaupastjóri ber m.a. ábyrgð á að stýra innkaupum fyrirtæksins með það að markmiði að tryggja hagkvæm innkaup, áreiðanlega birgja, skilvirka birgðastýringu og gagnsæ innkaupaferli.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Mótun og framkvæmd innkaupastefnu fyrirtækisins.
  • Umsjón með daglegum innkaupum og gerð langtíma innkaupaáætlana.
  • Samningaviðræður við birgja og þjónustuaðila, þar á meðal verð, gæði og afhendingarskilmála.
  • Reglulegt mat á frammistöðu birgja og áhættugreining á aðfangakeðju.
  • Markviss kostnaðargreining og leit að tækifærum til sparnaðar eða hagræðingar.
  • Greining gagna og gerð reglulegra skýrslna um innkaup, birgðastöðu og árangur.
  • Tryggja að innkaup séu í samræmi við lög, reglugerðir og innri verklagsreglur.
  • Innkaupastjóri leiðir og stýrir starfsfólki innkaupasviðs, þar á meðal skipulagi verkefna, þjálfun, leiðsögn og frammistöðustjórnun.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. í viðskiptafræði, verkfræði, rekstri, birgðakeðjustjórnun eða sambærilegum greinum.
  • Reynsla af innkaupum, samningagerð og samskiptum við birgja er skilyrði.
  • Reynsla af stjórnun eða leiðtogahlutverki er kostur.
  • Sterk viðskiptavitund og rekstrarskilningur með áherslu á hagkvæmni, verðmyndun og kostnaðarstýringu.
  • Reynsla af samningaviðræðum við innlenda og erlenda birgja.
  • Góð þekking á birgðastjórnun, flutningum og aðfangakeðju.
  • Hæfni til að leiða umbætur og þróa innkaupaferla sem styðja við vöxt og skilvirkni.
  • Mjög góð samskiptahæfni og samstarfsvilji þar sem starfið krefst náins samstarfs við sölu, rekstur og fjármál.
  • Greiningarhæfni og skipulagshæfni með getu til að vinna með gögn, kostnað og árangursmælikvarða.
  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
  • Framsýni og stefnumótandi hugsun
  • Árangursdrifinn og lausnamiðaður
  • Fagmennska og öguð vinnubrögð
  • Sterk leiðtogahæfni og hæfni til að byggja upp samstarf
  • Áhugi á umbótum og þróun innkaupa og aðfangakeðju
Fríðindi í starfi
  • Niðurgreiddur hádegsimatur. 
  • Líkamsræktarstyrkur.
  • Samgöngustyrkur til umhverfisvænna ferðamáta.

Að auki bjóðum við: 

  • Góðan vinnustað þar sem lögð er rækt við vellíðan og vöxt starfsfólks
  • Frábæra vinnufélaga og góðan starfsanda
  • Árlega heilsufarsskoðun og heilsueflingu 
  • Afsláttarkjör af vörum félagsins 
  • Sveigjanlegt starfsumhverfi 
  • Ýmsa viðburði á vegum fyrirtækisins ásamt virku starfsmannafélagi 
Реклама створена 16. March 2026
Кінцевий термін подання заявки5. April 2026
Мовні вимоги
АнглійськаАнглійська
вимагається
Рідна мова
ІсландськаІсландська
вимагається
Рідна мова
Розташування
Klettagarðar 25, 104 Reykjavík
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.СумліннийPathCreated with Sketch.НезалежністьPathCreated with Sketch.Обслуговування клієнтів
Робоче середовище
Професії
Мітки роботи