
Samhentir
Samhentir Kassagerð ehf var stofnað árið 1996. Félagið hefur vaxið jafnt og þétt frá stofnun, frá því að vera lítið sprotafyrirtæki í stærsta umbúðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Lykillinn að framgangi fyrirtækisins liggur í góðum tengslum við viðskipavini og birgja félagsins, vönduðu og reynslumiklu starfsfólki ásamt áherslu á gæði og nýjungar.
Innkaupafulltrúi
Samhentir leita að metnaðarfullum og sjálfstæðum innkaupafulltrúa til starfa í öflugu teymi innkaupadeildar fyrirtækisins. Innkaupasviðið hefur umsjón með daglegum innkaupum á stöðluðum og sérhönnuðum umbúðum, samskiptum við birgja, birgðastýringu og umsýslu tollamála með áherslu á gæði, hagkvæmni og áreiðanleika í afhendingum. Innkaupafulltrúi vinnur náið með samstarfsfólki innan fyrirtækisins og hefur mikilvægt hlutverk í því að tryggja skilvirka framkvæmd innkaupa og stöðuga leit að tækifærum til hagræðingar og umbóta.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með daglegum innkaupum og samskipti við innlenda og erlenda birgja
- Gerð og eftirfylgni samninga um verð, gæði og afhendingar
- Umsjón með kostnaðar- og birgðagreiningum
- Birgðastýring og eftirfylgni afhendinga
- Umsjón með almennum tollamálum í tengslum við innkaup
- Önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af innkaupastörfum eða skyldum verkefnum
- Góð samskiptahæfni og reynsla af samstarfi við birgja
- Skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Greiningarhæfni og viðskiptalegt innsæi
- Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
- Þekking á AGR, Microsoft Dynamics NAV eða sambærilegum kerfum er kostur
- Áhugi á nýtingu gervigreindar í innkaupa- og greiningarvinnu er kostur
- Þekking eða reynsla af tollamálum er kostur
Реклама створена 22. April 2026
Кінцевий термін подання заявки13. May 2026
Мовні вимоги
No specific language requirements
Розташування
Suðurhraun 4, 210 Garðabær
Тип роботи
Професії
Мітки роботи
Більше робочих місць (2)
Схожі вакансії (9)

Sérfræðingur í stafrænni þróun á sölusviði
Coca-Cola á Íslandi

Project Portfolio Manager
Nox Medical

Tollmiðlari - 50% starf
Aðföng

Project controller
COWI

Akstursstjóri Akureyri
Bústólpi ehf

Innkaupastjóri
Álfasaga ehf

Tesla Parts Advisor - Akureyri
Tesla

Strategic Purchaser
JBT Marel

Personalized Internet Ads Assessor - Icelandic (IS)
TELUS Digital