
Dalvíkurbyggð
Dalvíkurbyggð er sveitarfélag við utan verðan Eyjafjörð með metnaðarfulla framtíðarsýn og öflugu atvinnu- og menningarlífi. Umhverfið er öruggt og sérlega fjölskylduvænt með grunn- og leikskólum sem leggja meðal annars áherslu á virðingu og vellíðan Náttúrufegurð er mikil og aðstaða til íþróttaiðkunar og hvers kyns útivistar er framúrskarandi.
Nánari upplýsingar má finna á www.dalvikurbyggd.is

HAFNARVÖRÐUR
Hafnasjóður Dalvíkurbyggðar auglýsir laust starf hafnarvarðar/hafnsögumanns í 100% starf með bakvöktum.
Leitað er að öflugum og jákvæðum einstaklingi í afar fjölbreytt og lifandi starf.
Næsti yfirmaður er yfirhafnavörður. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg umsjón, eftirlit og viðhald á hafnasvæðum.
- Daglegt eftirlit með skipum, móttaka þeirra, leiðsögn, skráning og afgreiðsla.
- Vigtun afla.
- Skráning og skil upplýsinga til reikningagerðar samkvæmt gjaldskrá.
- Öryggis- og umhverfismál.
- Almenn viðhaldsverkefni og þrif.
- Önnur verkefni sem viðkomandi er falið af næsta yfirmanni hverju sinni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð almenn tölvukunnátta er skilyrði.
- Góð þekking og reynsla af Outlook, Excel og Word er skilyrði.
- Gott vald á íslenskri tungu í ræðu og riti.
- Iðnmenntun kostur.
- Góð samstarfs- og samskiptahæfni.
- Rík þjónustulund og jákvæðni.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Skipulagshæfni og nákvæmni.
- Gilt ökuskírteini.
- 30 tonna skipstjórnarréttindi (smáskipanámskeið) og hafnsöguréttindi eru kostur.
Реклама створена 6. May 2025
Кінцевий термін подання заявки20. May 2025
Мовні вимоги

вимагається
Розташування
Dalvík , 620 Dalvík
Тип роботи
Професії
Мітки роботи
Схожі вакансії (2)