Akureyri
Akureyri
Akureyri

Glerárskóli: Deildarstjóri stoðþjónustu

Í Glerárskóla er laus til umsóknar 100% staða deildarstjóra stoðþjónustu skólans.

Um er að ræða ótímabundna ráðningu.

Deildarstjóri stoðþjónustu ber ábyrgð á framkvæmd stoðþjónustu í skólanum. Deildarstjóri starfar skv. lögum og reglugerð um grunnskóla, lögum um málefni fatlaðra, lögum um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna, öðrum lögum sem við eiga, aðalnámskrá grunnskóla, menntastefnu Akureyrarbæjar og skólastefnu Glerárskóla.

Meginþungi starfs deildarstjóra stoðþjónustu er að halda utan um stoðþjónustu skólans og tryggja samvinnu allra sem að málum koma. Deildarstjóri stoðþjónustu skal tryggja fjölbreyttan stuðning við starfsemi og starfshætti í skólum, starfsfólk þeirra og forsjáraðila með ráðgjöf og fræðslu. Einnig sinnir deildarstjóri öðrum faglegum verkefnum sem starfsemi grunnskólans kallar eftir og falla innan menntunar og starfssviðs hans.

Deildarstjóri ber ábyrgð á starfi sínu gagnvart skólastjóra.

Stoðþjónusta Glerárskóla er gríðarlega öflug og fagleg en það styrkir allt skólastarf í þágu nemenda.

Glerárskóli vinnur samkvæmt hugmyndafræði Jákvæðs aga og eflingu góðra og jákvæðra samskipta. Skólinn er Grænfánaskóli og stundar úti- og grenndarkennslu auk þess að leggja áherslu á læsi, leiðsagnarnám, góða stoðþjónustu, verkgreinar og teymisvinnu. Glerárskóli leitast við að undirbúa nemendur undir líf og starf með því að aðstoða þá við að finna og efla hæfileika sína, taka ábyrgð á eigin námi og gjörðum og efla líkamlegt heilbrigði.

Glerárskóli er Erasmus+ vottaður skóli. Glerárskóli er hnetulaus skóli.

Einkunnarorð skólans eru HUGUR-HÖND-HEILBRIGÐI

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.glerarskoli.is

Leitað er að lausnamiðuðum og jákvæðum einstaklingi með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á teymisvinnu, vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við allt starfsfólk skólans.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ber ábyrgð á og stjórnar skipulagningu, framkvæmd og endurmati stoðþjónustu í skóla ásamt skólastjóra og leiðir stoðteymi skólans.
  • Stýrir teymi stoðþjónustunnar innan skólans.
  • Leiðir, ásamt stoðþjónustuteymi, formlegt samstarf heimilis, skóla og skólaþjónustu Akureyrarbæjar vegna nemenda sem njóta stoðþjónustu (teymis-, skimunar- og skilafundir).
  • Sér um gerð vinnuskipulags fyrir starfsfólk stoðþjónustu og stuðningsfulltrúa.
  • Tryggir að skimanir og greiningar séu gerðar í samræmi við skimunaráætlun.
  • Tryggir að þjálfun sé í samræmi við þjálfunaráætlun.
  • Kennsla/þjálfun sem felur í sér sérstakan undirbúning vegna sértækra þarfa eða öðru því sem tekið er fram í einstaklingsnámskrá.
  • Heldur utan um niðurstöður greininga/skimana, skipuleggur og/eða fylgir eftir inngripum í kjölfar skimana.
  • Er tengiliður skólans í þágu farsældar barna skv. lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna í samstarfi við aðra deildarstjóra skólans.
  • Tryggir að haldnir séu upplýsingafundir til starfsfólks vegna þarfa nemenda.
  • Sinnir þeim verkefnum er varða stoðþjónustu sem yfirmaður felur honum.
  • Er í stjórnendateymi skólans.
  • Tekur almennt þátt í þróunarstarfi skólans.
  • Fylgir stefnu skólans í starfi.
  • Önnur störf sem skólastjóri felur deildarstjóra og falla undir stoðþjónustu skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla
  • Framhaldsmenntun á sviði sérkennslu er æskileg
  • Kennslureynsla í grunnskóla
  • Réttindanámskeið LOGOS er æskilegt
  • Vald á fjölbreyttum kennsluaðferðum sem taka mið af mismunandi þörfum og áhuga og getu nemenda
  • Góð þekking á kennslu- og uppeldisfræði
  • Þekking á jákvæðum aga, teymisvinnu og teymisstjórnun er kostur
  • Reynsla á sviði stjórnunar eða verkefnastjórnunar er kostur
  • Áhugi og metnaður til að efla stoðþjónustuteymi skólans og fylgja sýn hans og stefnu
  • Gott vald á íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli
  • Góð enskukunnátta og tölvufærni
  • Vilji til að leita nýrra leiða í skólastarfi og áhugi á þróunarstarfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, samstarfsvilji, sveigjanleiki og víðsýni í starfi
  • Góðir skipulagshæfileikar, reglusemi og samviskusemi
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Реклама створена 1. October 2026
Кінцевий термін подання заявки15. October 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Досконалий
Розташування
Geislagata 9, 600 Akureyri
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.Фінансове плануванняPathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.ПроактивнийPathCreated with Sketch.Analytical skillsPathCreated with Sketch.КреативністьPathCreated with Sketch.ПозитивністьPathCreated with Sketch.ВчительPathCreated with Sketch.ВикладанняPathCreated with Sketch.Лідерські якостіPathCreated with Sketch.Людські стосункиPathCreated with Sketch.АмбіціїPathCreated with Sketch.PrecisionPathCreated with Sketch.ІновативнийPathCreated with Sketch.СумліннийPathCreated with Sketch.НезалежністьPathCreated with Sketch.ПлануванняPathCreated with Sketch.ГнучкістьPathCreated with Sketch.Командна роботаPathCreated with Sketch.Розробка планування співробітниківPathCreated with Sketch.Керування проектами
Професії
Мітки роботи