Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja

Gestgjafi hjá Öskju

Bílaumboðið Askja leitar eftir þjónustuliprum og ábyrgum aðila í hlutverk gestgjafa hjá fyrirtækinu.

Gestgjafar gegna veigamiklu hlutverki í að tryggja framúrskarandi þjónustu og að upplifun viðskiptavina Öskju sé til fyrirmyndar. Gestgjafar taka á móti og bjóða viðskiptavini velkomna, hafa umsjón með sýningarsal og sinna fjölbreyttum verkefnum tengdum sölu og þjónustu.

Starfið er fjölbreytt og tengist flestum deildum Öskju. Gestgjafi þarf að vera öruggur í samskiptum, lausnamiðaður og geta tekist á við fjölbreytt og einnig krefjandi mál með viðskiptavinum.

Gestgjafar Öskju starfa á Krókhálsi 11 (Mercedes Benz og Smart) og á Krókhálsi 13 (KIA og Honda). Mikil tenging er á milli húsanna og samstarf náið þar sem gestgjafar geta unnið þvert á vörumerki

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka og almenn þjónusta viðskiptavina
  • Umsjón með sýningarsal og fundarherbergjum (Létt þrif, frágangur og umsjón með þrifum)
  • Umsjón og aðstoð við snjall-lyklabox
  • Aðstoð við undirbúning og framkvæmd sýninga og viðburða
  • Ýmis verkefni sem styðja við sölu og þjónustu
  • Samskipti við birgja pantanir og annað tilfallandi
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af þjónustustörfum
  • Góð samskiptahæfni og lausnamiðað hugarfar
  • Áhugi og þekking á bílum er kostur
  • Frumkvæði, sjálfstæði og nákvæmni í vinnubrögðum
  • Fagleg framkoma, snyrtimennska og stundvísi
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
  • Metnaður til að veita framúrskarandi þjónustu
Af hverju Askja?
  • Vertu hluti af hratt vaxandi, alþjóðlegu fyrirtæki með þekkt bílamerki
  • Starfaðu með stuðningsríku og samvinnuþýðu teymi sem leggur áherslu á nýsköpun, fjölbreytileika og faglegt vinnuumhverfi
  • Tækifæri til að þróa feril þinn innan alþjóðlegs fyrirtækis
Реклама створена 26. September 2026
Кінцевий термін подання заявки11. October 2026
Мовні вимоги
АнглійськаАнглійська
вимагається
Досконалий
ІсландськаІсландська
вимагається
Досконалий
Розташування
Krókháls 13, 113 Reykjavík
Krókháls 11, 113 Reykjavík
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.ПроактивнийPathCreated with Sketch.Людські стосункиPathCreated with Sketch.НезалежністьPathCreated with Sketch.Обслуговування клієнтів
Професії
Мітки роботи