Norðurorka hf.
Norðurorka hf.
Norðurorka hf.

Gæðastjóri

Norðurorka leitar að öflugum og skipulögðum gæðastjóra til að leiða og þróa gæðastarf fyrirtækisins. Gæðastjóri gegnir lykilhlutverki í að tryggja að verklag, ferlar og skjöl styðji við öruggan og áreiðanlegan rekstur innviða sem samfélagið treystir á allan ársins hring.

Gæðastjóri heyrir undir skrifstofu forstjóra og ber ábyrgð á gæðastjórnunarkerfi Norðurorku, sem er vottað samkvæmt ISO 9001, og vinnur náið með stjórnendum, gæðaráði og öðrum hagaðilum fyrirtækisins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Rekstur og þróun gæðakerfisins í samræmi við starfsemi og áherslur Norðurorku 
  • Tryggja að gæðakerfið uppfylli kröfur ISO 9001, laga, reglugerða og annarra opinberra krafna 
  • Umsjón með innri og ytri úttektum 
  • Ábyrgð og umsjón með þjálfun og fræðslu starfsfólks tengt gæðamálum 
  • Ábyrgð og utanumhald gæðaráðsfunda ásamt eftirfylgni með verkefnum ráðsins 
  • Móttaka og greining frávika ásamt eftirfylgni umbóta 
  • Þátttaka í teymi um gæða-, umhverfis- og öryggismál 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi 
  • Reynsla af gæðastjórnun, ferlastýringu eða sambærilegu starfi 
  • Þekking á ISO 9001 gæðastaðli 
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta 
  • Mjög góð samskiptahæfni 
  • Góð greiningarhæfni, skipulag og nákvæm vinnubrögð 
  • Góð skipulagsfærni og sjálfstæði í vinnubrögðum 
  • Sjálfstæð og fagleg vinnubrögð 
  • Geta til að tileinka sér nýja færni og miðla henni til annarra 
Fríðindi í starfi
  • Samgöngustyrkur
  • Heilsueflingarstyrkur
  • Símtækjastyrkur
  • Niðurgreitt mötuneyti
Реклама створена 1. April 2026
Кінцевий термін подання заявки20. April 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Рідна мова
АнглійськаАнглійська
вимагається
Досконалий
Розташування
Rangárvellir 4, 603 Akureyri
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.Аналіз ризиківPathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.Analytical skillsPathCreated with Sketch.Проектування процедурPathCreated with Sketch.Впровадження процедурPathCreated with Sketch.ПлануванняPathCreated with Sketch.Системи відстеження якості
Робоче середовище
Професії
Мітки роботи
Більше робочих місць (1)