
Embla Medical | Össur
Össur var stofnað á Íslandi árið 1971 og er alþjóðlegt heilbrigðistæknifyrirtæki sem hannar og framleiðir stoðtæki, spelkur og stuðningsvörur. Markmið okkar er að bæta hreyfanleika fólks og gera því kleift að lifa lífinu án takmarkana. Embla Medical var stofnað árið 2024 til að styðja við áframhaldandi vöxt félagsins í heilbrigðistækni. Vörumerkin Össur, College Park, Fior & Gentz og ForMotion tilheyra öll Emblu Medical.
Við erum leiðandi afl á heimsvísu með um 4.500 starfsmenn í yfir 40 löndum. Höfuðstöðvarnar eru á Íslandi en starfsstöðvar víða um heim sinna vaxandi markaði. Félagið er skráð á hlutabréfamarkað í Danmörku.
Mannauðurinn er kjarninn í okkar árangri. Sem hátæknifyrirtæki leggjum við ríka áherslu á að laða að okkur hæft og metnaðarfullt starfsfólk sem leggur sig fram og sýnir frumkvæði.

Gæðaskoðun
Við óskum eftir að ráða öfluga manneskju í gæðaskoðun sem tilheyrir framleiðsludeild Össurar. Viðkomandi mun sinna mælingum og prófunum á hráefni og íhlutum fyrir framleiðslu, ásamt því að aðstoða og leysa af við kvörðun mælibúnaðar. Lögð er mikil áhersla á hátt þjónustustig og vönduð og nákvæm vinnubrögð.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Móttökuskoðun, framkvæmd gæðamælinga á íhlutum og hráefni og viðhljótandi skráning.
-
Aðstoð og afleysingar við kvörðun mælibúnaðar.
-
Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
-
Nákvæmni, þjónustulund og útsjónarsemi
-
Reynsla í notkun mælibúnaðar og mælingum
-
Góð enskukunnátta
-
Þekking á Word og Excel kostur
-
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
-
Hæfni í mannlegum samskiptum
Fríðindi í starfi
- Líkamsræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur
- Líkamsræktaraðstaða, hjólageymsla og golfhermir
- Mötuneyti með fjölbreyttu úrvali af mat
- Frí heilsufars-mæling og ráðgjöf
- Árlegur sjálfboðaliðadagur
- Sveigjanlegur vinnutími
- Starfsþróun
- Öflugt félagslíf
Реклама створена 17. April 2026
Кінцевий термін подання заявки4. May 2026
Мовні вимоги
Ісландськавимагається
Англійськавимагається
Розташування
Grjótháls 5, 110 Reykjavík
Тип роботи
Навички
PrecisionОбслуговування клієнтів
Професії
Мітки роботи
Більше робочих місць (3)
Схожі вакансії (12)

Starfsmaður í framleiðslustöð
Malbikstöðin

Sumarstarf - Móttaka og umpökkun lyfja
Heilsa

Sumarstarf í framleiðslu og áfyllingu hjá Víking brugghús
Víking Brugghús CCEP á Íslandi

Vélstjóri/keyrslumaður í fóðurframleiðslu
Fóðurblandan

Framleiðslustarf í Silicone deild - framtíðarstarf
Embla Medical | Össur

Sérfræðingur í sjónrænni gæðaskoðun / DPVI Technologist
Alvotech hf

Spennandi sumarstörf 2026 / Exciting Summer Jobs 2026
Alcoa Fjarðaál

Matráður / aðstoð í eldhúsi
Sýn

Specialist Tech OPS Control Operations
Alvotech hf

Starfsmaður í framleiðslu og vöruhúsi
Kemikal ehf.

Sumarstarf í skiltagerð
Fjölprent ehf

Starfsmaður í gas- og jarðgerðarstöð SORPU
SORPA bs.