
Lífland ehf.
Lífland ræktar lýð og land. Þjónusta okkar sýnir ræktarsemi við grunnstoðir mannlífs um allt land. Með fjölbreyttu vöruúrvali og vísindalegum vinnubrögðum sköpum við góðan jarðveg fyrir hverskonar rækt; jarðrækt, búfjárrækt, nautgriparækt og hrossarækt.
Þungamiðjan í starfi okkar er þó ekki síst mannrækt í víðustu merkingu þess orðs. Íslendingar hafa sterka þörf fyrir að komast í snertingu við uppruna sinn og náttúru landsins.
Það gildir einu hver klæðist stígvélunum - stoltur bóndi, frískleg hestakona eða fjölskyldufaðir í sumarhúsi - þau vita hvar þau standa. Lífland gefur þeim þessa jarðtengingu.
Lífland er markaðsdrifið þjónustufyrirtæki sem leggur áherslu á að uppfylla þarfir og óskir viðskiptavina. Starfsemi fyrirtækisins lýtur annars vegar að þjónustu tengdri landbúnaði og tengist hins vegar hestaíþróttum, dýrahaldi, útivist og þjónustu við matvælaiðnaðinn.
Hlutverk Líflands er að bæta árangur viðskiptavina sinna. Við viljum sjá fyrir breytingar á þörfum okkar viðskiptavina og bjóða áhugaverðustu lausnirnar fyrir þá á hverjum tíma fyrir sig.
Lífland rekur tvær verksmiðjur, annars vegar fóðurverksmiðju á Grundartanga og hins vegar kornmyllu í Korngörðum í Reykjavík ásamt því að reka Nesbúegg. Skrifstofur og lager eru staðsett í Brúarvogi, Reykjavík. Verslanir Líflands eru á Lynghálsi, Reykjavík, Borgarbraut Borgarnesi, Grímseyjargötu Akureyri, Ormsvöllum Hvolsvelli, Efstubraut Blönduósi og Austurvegi Selfossi.

Gæðafulltrúi
Lífland og Nesbúegg leita að gæðafulltrúa.
Vinnutíminn er frá 8:00-16:00 og um er að ræða 100% starf. Gæðafulltrúi tilheyrir gæða og ráðgjafasviði Líflands.
Ef þú brennur fyrir gæðamálum á landbúnaðarsviði og matvælum, þá gæti þetta verið rétta starfið fyrir þig.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með gæðahandbók Líflands og Nesbúeggja
- Gerð fóðuráætlana
- Yfirsýn yfir lög og reglugerðir sem lúta að starfsemi fyrirtækjanna
- Umsjón með gæðakerfinu, þróun og framkvæmd
- Úrvinnsla gagna úr gæðakerfi
- Yfirsýn og úrvinnsla kvartana
- Meðlimur í matvælaöryggisnefnd
- Fræðsla starfsmanna er varðar gæða og öryggismál
- Skipulagning og framkvæmd innri úttekta
- Þátttaka í ytri úttektum
- Eftirfylgni úrbótaverkefna í kjölfar úttekta
- Upplýsingagjöf til yfirvalda
- Öryggismál, innleiðing verklags og eftirfylgni
- Upplýsingagjöf til viðskiptavina sé skv. lögum og reglum s.s. merkingar á umbúðum
- Að hafa yfirlit yfir lög og reglugerðir sem lúta að starfsemi fyrirtækisins bæði hvað varðar framleiðslu fóðurs og mjöls sem og innflutning og geymslu á söluvörum.
- Hafa umsjón með starfsleyfum og vottunum Líflands
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Búvísindi, líffræði, matvælafræði, næringarfræði, efnafræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla eða mikill áhugi á gæðamálum
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð almenn tölvukunnátta
Реклама створена 24. April 2026
Кінцевий термін подання заявкиКінцевого терміну немає
Мовні вимоги
Ісландськавимагається
Англійськавимагається
Розташування
Brúarvogur 1-3 1R, 104 Reykjavík
Тип роботи
Навички
Проектування процедурВпровадження процедурСистеми відстеження якості
Професії
Мітки роботи
Більше робочих місць (5)
Схожі вакансії (10)

Lífeindafræðingur eða náttúrufræðingur
Landspítali

Líffræðingur á rannsóknastofu í sameindameinafræði
Landspítali

Nesbú leitar að öflugum bústjóra á Suðurlandi
Nesbú

Gæða- og skjalastjóri hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Verkstjóri / Teymisstjóri í garðyrkjustöð
Sólskins

Quality Associate
Íslensk erfðagreining

Ráðgjafi í heilsu-, öryggis- og umhverfismálum
Bílaumboðið Askja

Sviðsstjóri ráðgjafar
Reykjalundur

Sérfræðingur þjálfunar- og gæðamála
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Sumarstarf - Gæðaritari
Lyfjastofnun