Hrafninn frístundaklúbbur
Hrafninn frístundaklúbbur
Hrafninn frístundaklúbbur

Frístundaleiðbeinandi með stuðning

Leitað er að frístundaleiðbeinanda til að vinna með börnum og unglingum í frístundaklúbbnum Hrafninum. Mikilvægt er að viðkomandi hafi hæfni í mannlegum samskiptum og einlægan áhuga og ánægju af að vinna með börnum og unglinum með fötlun. Frístundaleiðbeinandi sinnir persónulegum stuðningi og hefur umsjón með daglegu skipulagi frístundastarfsins. Áhersla er lögð á virkt samráð og að efla sjálfstæði, færni og frumkvæði þátttakenda svo allir geti notið sín.

Æskilegt að umsækjendur hafi náð 20. aldursári.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sinnir persónulegum stuðningi við börn og unglinga með fötlun
  • Hefur umsjón með hópum, verkefnum og viðburðum í frístundastarfinu
  • Vinnur markvisst að því að auka sjálfstæði, færni og virkni þeirra sem taka þátt í starfseminni
  • Stuðlar að jákvæðum og uppbyggilegum samskiptum við börn og unglinga
  • Vinnur í anda lýðræðis á starfsstaðnum
  • Sinnir öðrum verkefnum sem viðkomandi kunna að vera falin af yfirmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf æskilegt
  • Reynsla af starfi með börnum og unglingum með fötlun æskileg
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Skipulögð og fagleg vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta
Реклама створена 21. August 2025
Кінцевий термін подання заявки19. September 2025
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Високий
Розташування
Skálaheiði 2, 200 Kópavogur
Тип роботи
Підходить для
Професії
Мітки роботи