
Pegasus félagsmiðstöð
Félagsmiðstöðin Pegasus er starfrækt allt skólaárið og er undir stjórn Frístundadeildar Kópavogsbæjar. Félagsmiðstöðin er staðsett í Álfhólsskóla. Markmið félagsmiðstöðvarinnar er að bjóða upp á markvisst frístunda- og forvarnarstarf undir handleiðslu fagfólks. Lögð er áhersla á lýðræði, virka þátttöku, uppbyggingu sjálfsmyndar, ánægju og gleði. Í félagsmiðstöðinni er bæði boðið upp á opið starf og hópastarf, sem miða bæði að því að stuðla að auknum félagsþroska, samskiptahæfni, þátttöku og ábyrgð.
Kópavogsbær er barnvænt sveitarfélag. Félagsmiðstöðvar Kópavogs hafa greinar Barnasáttmála Sameinuðu Þjóðanna að leiðarljósi í öllu sínu starfi, og vinna markvisst að því að uppfylla réttindi barna og ungmenni.

Frístundaleiðbeinandi í félagsmiðstöð - Hlutastarf
Félagsmiðstöðin Pegasus óskar eftir að ráða inn frístundaleiðbeinanda í hlutastarf á þessu starfsári. Um er að ræða kvöldstarf með börnum á bilinu 10-16 ára á mánudagskvöldum og annað hvert föstudagskvöld. Hentugt að umsækjandi geti byrjað sem fyrst
Frístundaleiðbeinandi vinnur faglegt starf með börnum og unglingum í frístundastarfi. Hann hefur umsjón með og skipuleggur hópastarf og verkefni tengdum menningar-, félags- og forvarnarstarfi félagsmiðstöðvanna. Hann vinnur í anda lýðræðis á starfsstaðnum og vinnur markvisst að því að auka sjálfstæði, ábyrgð og virkni þeirra sem taka þátt í starfinu.
Æskilegt að umsækjendur sé á 20. aldursári eða eldri.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipuleggur og hefur umsjón með ákveðnum hópum, verkefnum og viðburðum tengdum menningar-, félags- og tómstundastarfi í félagsmiðstöðvum í samstarfi við forstöðumann og aðra starfsmenn.
- Vinnur faglegt starf með börnum og unglingum í frístundastarfi.
- Vinnur markvisst að því að auka sjálfstæði, ábyrgð og virkni þeirra sem taka þátt í starfseminni.
- Vinnur samkvæmt 1. og 2. stigs forvörnum í öllu starfi félagsmiðstöðvarinnar.
- Vinnur í anda lýðræðis á starfsstaðnum og stuðlar að því að börn og unglingar eigi greiðan aðgang að lýðræðislegum ákvörðunum um starfsemi félagsmiðstöðvar.
- Hefur umsjón með skipulögðu frístundastarfi ólíkra hópa barna og unglinga í samræmi við þeirra þarfir.
- Sinnir öðrum þeim verkefnum sem honum kunna að vera falin af yfirmanni og fellur undir hans starfssvið.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Diplómanám í tómstundafræðum eða sambærilegu námi æskilegt.
- Reynsla af störfum með börnum og unglingum æskileg.
- Færni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í störfum.
- Skipulögð og fagleg vinnubrögð.
- Kunnátta í íslensku og ensku æskileg.
Реклама створена 23. September 2026
Кінцевий термін подання заявки7. October 2026
Мовні вимоги
Ісландськавимагається
Англійськавимагається
Розташування
Álfhólsvegur 120, 200 Kópavogur
Тип роботи
Навички
ПроактивнийНезалежність
Підходить для
Робоче середовище
Професії
Мітки роботи
Схожі вакансії (12)

Stuðningsfulltrúi óskast í Þorláksskóla
Þorláksskóli

Umsjónarkennari á miðstigi í Álfhólsskóla
Álfhólsskóli

Leikskólakennari óskast
Sveitarfélagið Strandabyggð

Leikskólakennari - leikskólinn Geislabaugur
Leikskólinn Geislabaugur

Leikskólakennari eða leiðbeinandi óskast til starfa
Leikskólinn Garðasel

Leikskólinn Naustatjörn: Leikskólakennari eða háskólamenntaður starfsmaður
Akureyri

Leikskólinn Naustatjörn: starfsmaður í leikskóla
Akureyri

Umsjónarkennari á yngsta stigi – Hvaleyrarskóli
Hafnarfjarðarbær

Deildarstjóri í Leikskólann Lundarsel-Pálmholt
Akureyri

Stuðningsfulltrúi óskast við Rimaskóla
Rimaskóli

Leikskólakennarar óskast
Kópasteinn

Ísat kennari - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær