Heilbrigðisstofnun Austurlands
Heilbrigðisstofnun Austurlands

Framkvæmdastjóri mannauðs - Heilbrigðisstofnun Austurlands

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) leitar að öflugum og framsýnum leiðtoga í starf framkvæmdastjóra mannauðs. Leitað er að einstaklingi með víðtæka reynslu og þekkingu á mannauðsmálum, ríka leiðtogahæfni og áhuga á að þróa áfram öflugt og faglegt starfsumhverfi. Starfið býður uppá fjölbreytt og krefjandi verkefni og tækifæri til að hafa veruleg áhrif á þróun mannauðsmála og starfsumhverfis hjá einum stærsta vinnustað Austurlands.

Framkvæmdastjóri mannauðs er hluti af framkvæmdastjórn HSA og gegnir lykilhlutverki í stefnumótun stofnunarinnar, þróun vinnustaðamenningar og uppbyggingu mannauðs. Starfið felur í sér náið samstarf við forstjóra, stjórnendur og starfsfólk þvert á 14 starfstöðvar HSA, en hjá stofnuninni starfa um 480 manns.

Nánari upplýsingar um starfsemi HSA má finna á www.hsa.is.

Staðan er laus frá 1. nóvember eða eftir nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ber rekstrarlega, faglega og mannauðslega ábyrgð á starfssviði mannauðsmála.
  • Mótar og leiðir stefnu og faglega mannauðsstjórnun HSA í samræmi við stefnu og markmið stofnunarinnar. 
  • Tryggir faglegt og samræmt verklag við ákvörðunartöku og framkvæmd mannauðsmála. 
  • Veitir stjórnendum ráðgjöf og stuðning í mannauðs-, stjórnunar- og kjaramálum. 
  • Ráðgjöf og stuðningur við starfsfólk þegar kemur að mannauðsmálum. 
  • Hefur umsjón með stofnunarsamningum og framkvæmd launasetningar skv. kjarasamningum í samstarfi við stjórnendur og launafulltrúa. 
  • Leiðir þróun fræðslumála og styður við uppbyggingu öflugrar stjórnendamenningar. 
  • Yfirumsjón með jafnlaunakerfi, jafnréttisáætlun og skýrslugjöf til Jafnréttisstofu.
  • Hefur umsjón með árangursmælingum á sviði mannauðsmála og vinnur að stöðugum umbótum. 
  • Tekur virkan þátt í stefnumótun, rekstri og langtímaþróun stofnunarinnar sem hluti af framkvæmdastjórn HSA.  
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi er skilyrði. Framhaldsmenntun á háskólastigi er æskileg.
  • Víðtæk reynsla af mannauðsmálum og þekking á mannauðsstjórnun er skilyrði.
  • Stjórnunarreynsla er æskileg.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Leiðtogahæfni og metnaður til að ná árangri í starfi ásamt getu til að leiða og hrinda breytingum í framkvæmd.
  • Frumkvæði, áreiðanleiki, skipulagshæfni, jákvætt viðmót og lausnarmiðuð nálgun.
  • Þekking og reynsla af kjaramálum, vinnurétti og opinberri stjórnsýslu er æskileg. 
  • Reynsla af stefnumótun, breytingarstjórnun og/eða umbótaverkefnum er kostur.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Mjög góð íslenskukunnátta og góð enskukunnátta.
  • Mjög góð hæfni í tjáningu í ræðu og riti. 
Реклама створена 25. September 2026
Кінцевий термін подання заявки9. October 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Рідна мова
АнглійськаАнглійська
вимагається
Досконалий
Розташування
Lagarás 22, 700 Egilsstaðir
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.ПроактивнийPathCreated with Sketch.Лідерські якостіPathCreated with Sketch.Людські ресурсиPathCreated with Sketch.Державне управлінняPathCreated with Sketch.Планування
Професії
Мітки роботи