Búseti
Búseti
Búseti

Fagmenntaður pípari óskast til starfa

Búseti leitar að reynslumiklum og lausnamiðuðum einstaklingi 

Búseti óskar eftir að ráða löggiltan meistara í pípulögnum til starfa. Félagið vill bæta við í teymið nákvæmum og faglegum einstaklingi sem þarf að geta unnið vel sjálfstætt og í hópi. Viðkomandi þarf að hafa mikla þekkingu á lagnavinnu, hita- og tæknikerfum og úttektum. Hafa þjónustulund og geta tekið faglegar ákvarðanir á verkstað byggt á viðmiðum Búseta.

Búseti er húsnæðissamvinnufélag sem leggur upp úr faglegu viðhaldi og endurbótum á fasteignasafni sínu sem telur um 1.500 íbúðir. Allar fasteignir félagsins eru staðsettar á höfuðborgarsvæðinu. Verkefnin eru fjölbreytt og góður starfsandi ríkir hjá félaginu. Viðkomandi mun tilheyra teymi sem saman leitar hagkvæmra leiða hvað varðar fasteignaumsjónina. Lögð er áhersla á vönduð vinnubrögð og langtímahugsun þegar kemur að viðhaldi fasteigna Búseta.

Um er að ræða 100% framtíðarstarf hjá rótgrónu og traustu félagi.

Menntunar- og hæfniskröfur

Menntunarkröfur 

  • Meistararéttindi í pípulögnum

 

Hæfniskröfur 

  • Þekking á hitakerfum og tæknibúnaði fasteigna
  • Reynsla af viðhaldi atvinnu- eða íbúðarhúsnæðis 
  • Hæfni til að lesa teikningar og verklýsingar  
  • Góð tölvukunnátta og þekking til að vinna í viðhaldskerfum  
  • Sjálfstæð, skipulögð og vönduð vinnubrögð 
  • Góð samskiptafærni og þjónustulund nauðsynleg
  • Lausnamiðuð hugsun og frumkvæði  
  • Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði 

Persónulegir eiginleikar 

  • Áreiðanleiki og stundvísi  
  • Jákvætt viðmót  
  • Hæfni til að vinna undir álagi  
  • Samviskusemi og öryggisvitund  
  • Hæfni til samstarfs í teymi  

Vinnutími og starfsaðstæður 

  • Dagvinna frá 08:00 til 16:00 (15:00 á föstudögum) 
  • Útköll geta fylgt starfinu
  • Starfið fer einkum fram í íbúðarhúsnæði og tæknirýmum fasteigna 
  • Í höfuðstöðvum Búseta er mötuneyti þar sem starfsfólk borðar saman í hádeginu 
  • Starfsmaðurinn hefur bifreið til afnota tengt hlutverkinu

 

Önnur skilyrði 

  • Gilt ökuskírteini - B 
  • Hreint sakavottorð 
Реклама створена 24. September 2026
Кінцевий термін подання заявки23. October 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Рідна мова
АнглійськаАнглійська
вимагається
Високий
Розташування
Síðumúli 10, 108 Reykjavík
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.Водійські права категоріі Б (B)PathCreated with Sketch.Загальні знання комп’ютераPathCreated with Sketch.ПозитивністьPathCreated with Sketch.Майстер-ремісникPathCreated with Sketch.Водійські праваPathCreated with Sketch.СантехнікPathCreated with Sketch.СантехнікаPathCreated with Sketch.НезалежністьPathCreated with Sketch.Командна роботаPathCreated with Sketch.Обслуговування клієнтів
Робоче середовище
Професії
Мітки роботи