NPA miðstöðin
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin

Ertu til í flippað hlutastarf með afleysingarívafi?

Heill og sæll atvinnuleitandi góður!

Ég er 40 ára kona sem er búsett í Fossvoginum sem leitar að aðstoðarkonu í hlutastarf í NPA þjónustu. Áhugamálin eru margvísleg eins og tónlist, kvikmyndir, íþróttir, útivist, ljósmyndun og fjölmiðlar. Auk þess sem mér finnst fólk ótrúlega áhugavert. Auk þess spila ég skrafl á netinu af miklum móð.

Ef þú ert kona sem hefur náð 25 ára aldri, ert hress, skemmtileg, opin, getur tekið leiðsögn og átt auðvelt með mannleg samskipti, þá er ég að leita að þér. Ekki skemmir fyrir ef þú ert kaldhæðin og til í alls konar flipp.

Ég er að leita að aðstoðarkonu í hlustastarf og afleysingar þegar upp koma veikindi.

Í starfinu felst aðstoð við líkamlegt hreinlæti, heimilisþrif, aðstoð við eldamennsku og verslunarferðir. Auk þess að fara í styttri ferðir út fyrir bæjarmörkin.

Um er að ræða tvískiptar morgun-, kvöld og helgarvaktir. Á virkum dögum eru vaktirnar 7-8 klukkustunda langar en um helgar er morgunvaktin fjórar klukkustundir og kvöldvaktin er tíu klukkustunda löng.

Sett eru skilyrði um að viðkomandi sé með hreint sakavottorð og með bílpróf.

Laun eru samkvæmt sérkjarasamningi NPA miðstöðvarinnar við Eflingu.

Starfið byggist á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf en hægt er að kynna sér allt um hana inn á vefsíðu NPA miðstöðvarinnar, npa.is.

Реклама створена 16. September 2026
Кінцевий термін подання заявки4. October 2026
Мовні вимоги
АнглійськаАнглійська
вимагається
Високий
ІсландськаІсландська
вимагається
Високий
Розташування
Urðarhvarf 8, 203 Kópavogur
Тип роботи
Підходить для
Професії
Мітки роботи