Deildarstjóri í teymisvinnu
Heilsuleikskólinn Kór í Kópavogi er sex deilda leikskóli sem var opnaður
árið 2006. Allir leikskólar innan vébanda Skóla ehf. starfa í anda heilsustefnunnar sem hverfist um heilsu og lífsgæði nemenda, starfsfólks og
nærsamfélagsins.
Leikurinn, hreyfingin, næringin og sköpunin er okkar
Hjá okkur er lögð áhersla á öruggt og hlýlegt umhverfi fyrir leik og þroska
þar sem öll börn fá að upplifa leikskólann á sama hátt óháð hreyfigetu.
Skólar ehf. ætla sér að verða leiðandi á sviði heilsueflingar í leikskólastarfi
á Íslandi þar sem heilsustefnan er höfð að leiðarljósi og viðmið fyrir faglegt
starf og rekstur heilsuleikskóla.
Á góðum vinnustað er líkamleg og andleg heilsa í fyrirrúmi
Það er ekki nóg að börnin séu heilsuhraust, heilsa starfsfólksins sem annast
þau þarf líka að vera í fyrirrúmi. Skólar hafa markvisst byggt upp heilsustefnu sína í samvinnu við starfsfólk og sérfræðinga.
Til að vinna að betra heilsufari starfsfólks var unnin sérstök heilsufarsáætlun í samstarfi við Heilsuvernd. Viðverustefna umbunar starfsmönnum
fyrir góða viðveru en styður þá sem eitthvað bjátar á hjá.
Deildarstjóri óskast til starfa á yngri gang.
Frekari upplýsingar veitir Svanhildur Dóra Björgvinsdóttir leikskólastjóri í síma 570 - 4940 eða á netfangið kor@skolar.is
Allar nánari upplýsingar um störfin eru á alfred.is og um starfsemi
Skóla ehf. á skolar.is
- Vinnur að og ber ábyrgð á uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra
- Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á deildinni
- Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á miðlun upplýsinga
- Ber ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og að öll börn fái kennslu og umönnun við hæfi
- Ber ábyrgð á foreldrasamvinnu
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
- Leyfisbréf kennara (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Gerð er krafa um reynslu af leikskólastarfi
- Áhugi á að vinna með börnum
- Færni í samskiptum og samstarfshæfileikar
- Vilji til að taka þátt í þróun á faglegu starfi og láta til sín taka
- Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og faglegur metnaður
- Lausnarmiðun
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
- Ýmis fríðindi og sveigjanleiki fyrir kennara með leyfisbréf s.s. forgangur fyrir börn, sveigjanleiki í vinnutímaskipulagi (undirbúningsviðveru)
- Vinnustytting er að hluta til tekin á milli jóla- og nýárs, í dymbilviku og tvemur vetrarfríum. Rest er tekin í samráði við leikskólastjóra
- Samgöngustyrkur
- 3 heilsusamlegar máltíðir á dag
- Íþróttastyrkur