
Ford á Íslandi | Brimborg
Brimborg er sölu- og þjónustuaðili Ford á Íslandi. Brimborg býður breiða línu nýrra og notaða Ford bíla í miklu úrvali ásamt varahluta- og verkstæðisþjónustu.
Brimborg er eitt öflugasta fyrirtæki landsins á bílamarkaði með umboð fyrir mörg af þekktustu bílamerkjum heims en auk Ford hefur Brimborg umboð fyrir Volvo, Polestar, Citroën, Peugeot, Mazda og Opel ásamt Volvo vörubílum, Volvo vinnuvélum og Volvo Penta bátavélum auk hágæða hjólbarða frá Nokian.
Fyrirtækið rekur í dag bílaumboð, bílasölu fyrir fólksbifreiðar, atvinnubíla- og atvinnutæki, bílaleigu og víðtæka varahluta- og verkstæðisþjónustu fyrir bíla og atvinnutæki.

Bifvélavirki fyrir Ford
Brimborg óskar eftir hæfileikaríkum og metnaðarfullum bifvélavirkja til starfa á verkstæði Ford að Bíldshöfða 6 í Reykjavík. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf sem felur í sér bilanagreiningu og viðgerðir á Ford bifreiðum.
Við leitum að einstaklingi sem?
- Er með sveinspróf og/eða meistarapróf í bifvélavirkjun eða mikla reynslu af viðgerðum
- Er skipulagður, samviskusamur og metnaðarfullur
- Nýtur sín í krefjandi og markmiðadrifnu umhverfi
- Hefur áhuga á að taka þátt í uppbyggingu og vexti vörumerkisins Ford á Íslandi.
Við bjóðum uppá
- Að vinna með nýjustu bíltækni í framúrskarandi vinnuaðstöðu.
- Lifandi og spennandi starf þar sem er unnið við nýjustu bíltækni með háþróuðum tækjabúnaði sem eykur skilvirkni og léttir störfin
- Skemmtilegt og fjölbreytt starf hjá metnaðarfullu fyrirtæki
- Öflugt starfsmannafélag með fjölbreyttu félagslífi og viðburðum
- Fjölskylduvænan vinnustað með styttri opnunartíma
Helstu verkefni og ábyrgð
- Bilanagreining og viðgerðir á Ford bílum
- Þátttaka í þjálfun og símenntun
Menntunar- og hæfniskröfur
- Réttindi í bifvélavirkjun eða sambærileg reynsla af bílaviðgerðum
- Frumkvæði, sjálfstæði og fagleg vinnubrögð
- Snyrtimennska, stundvísi og áreiðanleiki
- Gilt bílpróf
Fríðindi í starfi
- Fjölbreytt fríðindi samkvæmt mannauðsstefnu Brimborgar
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Afsláttur af vörum og þjónustu fyrirtækisins
- Árlegur íþrótta- og heilsustyrkur
- Þú færð frí á afmælisdaginn þinn, enda stórmerkilegur dagur
Реклама створена 11. April 2026
Кінцевий термін подання заявки30. April 2026
Мовні вимоги
Ісландськавимагається
Англійськавимагається
Розташування
Bíldshöfði 6, 110 Reykjavík
Тип роботи
Навички
МеханікАвтовідновленняПроактивнийВодійські праваСумліннийПунктуальністьПромислова механікаОбслуговування клієнтів
Робоче середовище
Професії
Мітки роботи
Схожі вакансії (12)

Starfsmaður í bifreiðaskoðun á Selfossi
Frumherji hf

Yfirvélstjóri
Þörungaverksmiðjan hf. / Thorverk

Vélstjóri / Marine engineer
Björgun-Sement

Múrari með reynslu / Mason with experience
Einingaverksmiðjan

Spennandi sumarstörf 2026 / Exciting Summer Jobs 2026
Alcoa Fjarðaál

Vélstjóri/keyrslumaður í fóðurframleiðslu
Fóðurblandan

Reynslumikill bifvélavirki óskast til starfa hjá Suzuki og Vatt
Suzuki og Vatt

Starfsmaður á vélaverkstæði Eimskips Mjóeyrarhöfn
Eimskip

Viðgerðarmaður á Selfossi
Steypustöðin

Campervan Mechanic
Indie Campers

Bifvélavirki í forgreiningu Kia, Honda og Xpeng
Bílaumboðið Askja

Tengdu þig við okkur - rafvirki í Borgarnesi
Rarik ohf.