ÍSAK Bílaleiga
ÍSAK Bílaleiga
ÍSAK Bílaleiga

Bifvélavirki / Auto Mechanic

Bílaleigan ÍSAK óskar eftir starfsmanni til að sjá um viðhald bifreiða og búnaðar sem fyrirtækið á og leigir út til viðskiptavina.

Skilyrði að viðkomandi hafi þekkingu, áhuga og reynslu af viðhaldi bíla, góða skipulagshæfni og ríka þjónustulund. Menntun í bifvélavirkjun, vélvirkjun eða tæknifræði kostur en ekki skilyrði.

Hlutverk bifvélavirkja er að tryggja besta mögulega ástand og endingu bifreiða og búnaðar sem fyrirtækið á.

Starfið hentar einstaklingi sem getur tekist á við fjölbreytt verkefni og gengið í öll önnur tilfallandi störf í samvinnu við aðra starfsmenn s.s. bílaþrif, þjónustu við viðskiptavini, flutning og neyðarþjónustu.

Bifvélavirki sér um skipulag á verkstæði, varahlutalager og viðhaldsskráningu.

Starfsstöð er á verkstæði og skrifstofu fyrirtækisins í Mosfellsbæ.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Bílaleigan ÍSAK leigir út sérútbúna bíla til aksturs með ferðamenn og í ýmis önnur verkefni.

Félagið skipuleggur einnig ferðir fyrir hópa og einstaklinga um hálendi Íslands.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Bílaviðgerðir og viðhald búnaðar
  • Skipulag og skráning á viðhaldi
  • Skipulag og umsjón með verkstæði og varahlutalager
  • Samskipti við viðskiptavini og afhending bifreiða
  • Flutningur bíla og búnaðar
  • Önnur tilfallandi störf s.s. akstur, þrif ofl.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Þekking, áhugi og reynsla af bílaviðgerðum
  • Gott vald á íslensku og ensku í skrifuðu og töluðuð máli
  • Skipulagshæfileikar
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Meirapróf kostur en ekki skilyrði
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Реклама створена 18. June 2025
Кінцевий термін подання заявки30. June 2025
Мовні вимоги
АнглійськаАнглійська
вимагається
Високий
ІсландськаІсландська
вимагається
Високий
Розташування
Desjamýri 8, 270 Mosfellsbær
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.Водійські права категоріі Б (B)PathCreated with Sketch.ПроактивнийPathCreated with Sketch.Людські стосункиPathCreated with Sketch.НезалежністьPathCreated with Sketch.Планування
Професії
Мітки роботи