Varmárskóli
Varmárskóli
Varmárskóli

Aðstoðarforstöðumaður í frístundasel

Aðstoðarforstöðumaður í frístundasel

VIÐ LEITUM AÐ ÖFLUGUM AÐSTOÐARFORSTÖÐUMANNI TIL STARFA Í FRÍSTUNBASELI VARMÁRSKÓLA

Nú vantar okkur hressan og skemmtilegan einstakling í vinnu sem aðstoðarforstöðumann frístundaheimilis við Varmárskóla. Aðstoðarforstöðumaður vinnur með forstöðumanni að skipulagningu starfsins fyrir hádegi og með börnunum eftir hádegi. Aðstoðarforstöðumaður er jafnframt staðgengill forstöðumanns.

Við bjóðum skemmtilegt og gefandi starf sem styður við leik og þroska nemenda í 1. - 4.bekk.

Við leitum að starfsmanni sem hefur áhuga á hvetjandi og skemmtilegu starfi með börnum þar sem leikurinn er í fyrirrúmi. Við leggjum áherslu á að búa til öruggt og skemmtilegt umhverfi fyrir börn og starfsfólk til njóta þess tómstundastarfs sem við höfum upp á að bjóða. Vinnutími er frá 8:30-16:30 alla virka daga.

Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun háskólamenntun sem nýtist í starfi. Reynsla sem nýtist í starfi Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður Góð færni í samvinnu og samskiptum Áhugi á starfi með börnum Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki Mjög góð íslenskukunnátta
Реклама створена 30. April 2025
Кінцевий термін подання заявки13. May 2025
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Досконалий
Розташування
Skólabraut
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.ПроактивнийPathCreated with Sketch.ПозитивністьPathCreated with Sketch.АмбіціїPathCreated with Sketch.НезалежністьPathCreated with Sketch.Командна робота
Професії
Мітки роботи