Steypustöðin
Steypustöðin
Steypustöðin

Aðalbókari

Steypustöðin leitar að einstaklingi sem hefur góða þekkingu á bókhaldi og hefur metnað fyrir því að tryggja vönduð vinnubrögð og áreiðanlegar fjárhagsupplýsingar.

Aðalbókari gegnir lykilhlutverki í fjármálum Steypustöðvarinnar og tengdum félögum og hefur umsjón með daglegu bókhaldi og afstemmingum. Starfið felur í sér náið samstarf við aðra starfsmenn innan fjármálasviðs sem og annað starfsfólk félagsins.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Yfirumsjón með daglegu fjárhags- og lánadrottnabókhaldi Steypustöðvarinnar og tengdra félaga
  • Umsjón með reglubundnum afstemmingum
  • Umsjón með virðisaukaskattsskilum og öðrum lögbundnum skilum
  • Aðstoð við undirbúning gagna vegna ársuppgjörs og samskipti við endurskoðendur
  • Eftirfylgni með fjárhagsupplýsingum og stuðningur við stjórnendur
  • Þróun og umbætur á verkferlum í bókhaldi og uppgjöri
  • Þátttaka í innleiðingu og þróun fjármála- og bókhaldskerfa
  • Leiðbeiningar og stuðningur við samstarfsfólk í bókhaldi og öðrum deildum
  • Önnur verkefni á sviði fjármála og bókhalds í samráði við fjármálastjóra


Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi, s.s. á sviði bókhalds, reikningshalds eða viðskipta
  • Haldbær reynsla af bókhaldi og uppgjörsvinnu
  • Þekking og reynsla á Business Central
  • Góð almenn tölvukunnátta, sérstaklega í Excel
  • Lausnamiðuð og umbótadrifin hugsun
  • Hæfni til að forgangsraða og standa skil á verkefnum innan tímamarka
  • Greiningarhæfni og nákvæmni
  • Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð samskiptafærni og þjónustulund
  • Góð íslensku- og enskukunnátta


Fríðindi í starfi

  • Námskeið og fræðsla
  • Líkamsræktarstyrkur
  • Hádegismatur
  • Fjölbreytt verkefni
  • Jákvætt og hvetjandi vinnuumhverfi


Allar umsóknir skulu berast í gegnum ráðningarkerfi Alfred.is og þurfa að innihalda ferilskrá ásamt kynningarbréfi.

Allar nánari upplýsingar um starfið veitir Elísabet Ólöf Allwood, Framkvæmdarstjóri Fjármála í gegnum netfangið [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 5. október nk.


Um Steypustöðina

Steypustöðin var stofnuð árið 1947 og eru aðalstöðvar félagsins á Malarhöfða 10 Reykjavík. Steypustöðin er með útibú á nokkrum stöðum eins og Hafnarfirði, Selfossi, Helguvík, Borgarnesi og Þorlákshöfn ásamt tveimur færanlegum Steypustöðvum.

Eins og nafnið gefur kynna til er meginstarfsemi félagsins framleiðsla og afhending á steypu. Félagið rekur einnig helluverksmiðju, flotbíla fyrir flotmúr, múrverslun, efnisvinnslu og stærstu einingaverksmiðju landsins í Borgarnesi.

Hjá félaginu starfa nú um 300 starfsmenn.

Реклама створена 22. September 2026
Кінцевий термін подання заявки5. October 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Досконалий
АнглійськаАнглійська
вимагається
Досконалий
Розташування
Malarhöfði 10, 110 Reykjavík
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.Улагодження конфліктівPathCreated with Sketch.Загальні знання комп’ютераPathCreated with Sketch.Людські стосункиPathCreated with Sketch.Microsoft Dynamics 365 Business CentralPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.ПлануванняPathCreated with Sketch.Детальний опис
Професії
Мітки роботи
Більше робочих місць (1)