Endurmenntun HÍ
Endurmenntun HÍ
Endurmenntun HÍ

Sorg og sorgarviðbrögð barna og unglinga

Hvernig upp­lifa börn og ung­ling­ar sorg? Hvernig getum við mætt þeim betur og stað­ið við bakið á þeim?

Á námskeiðinu er fjallað um hinar ýmsu myndir sorgarinnar og hvernig þessar myndir snerta börn og unglinga hvert á sinn hátt út frá aldri þeirra og þroska.

Fjallað verður um viðbrögð barna og unglinga við ýmsum breytingum í lífi þeirra, svo sem vegna skilnaðar, flutninga, vinamissis, dauða gæludýra og dauða nákominna. Veitt er innsýn inn í heim þeirra þegar þau upplifa sorg og missi við þessar aðstæður og hvaða úrræðum við getum beitt þeim til stuðnings.

Námskeiðið er ætlað öllum sem starfa með börnum og unglingum, til dæmis grunn- og leikskólakennurum, sérkennurum, námsráðgjöfum, þroskaþjálfum, skólahjúkrunarfræðingum, íþrótta- og tómstundastarfsfólki og stuðningsfulltrúum.

Починається
24. Sep 2026
Тип
На сайті
Проміжок часу
1 часи
Ціна
27 900 kr.
Поділитися
Надіслати повідомлення
Поділитися
Копіювати URL-адресу
Категорії