Náttúruverndarstofnun
Náttúruverndarstofnun

Yfirlandvörður í Jökulsárgljúfrum

Náttúruverndarstofnun auglýsir starf yfirlandvarðar laust til umsóknar í Jökulsárgljúfrum og innan annarra verndarsvæða Norðausturlands .

Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf í einstakri náttúru. Staða yfirlandvarðar er heilsársstaða og heyrir undir þjóðgarðsvörð á svæðinu. Starfsstöð er Ásbyrgi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ber ábyrgð á daglegri verkstjórn starfsfólks og hefur yfirsýn yfir stöðu verkefna
  • Sinnir þjálfun og móttaka sumarstarfsfólks
  • Fræðsla og upplýsingagjöf á svæðinu
  • Vinnur að öryggismálum
  • Eftirlit með náttúru og innviðum ásamt viðhaldi innviða
  • Þjónusta og upplýsingagjöf til ferðafólks í samvinnu við aðra landverði
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Landvarðaréttindi
  • Mjög góð samskipta- og samstarfsfærni
  • Geta til að þróa hugmyndir og verklag
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Áhugi og þekking á náttúruvernd og umhverfismálum
  • Færni í miðlun upplýsinga
  • Gott vald á íslensku og ensku. Frekari tungumálakunnátta er kostur
  • Almenn ökuréttindi, reynsla af akstri breyttra jeppa og vinnuvéla er kostur
  • Reynsla af verkstjórn og/eða mannauðsmálum er kostur
  • Verkþekking er kostur
  • Réttindi í fyrstu hjálp eru kostur
  • Störf á friðlýstum svæðum og starf við leiðsögn, reynsla af útivist og fjallamennsku er kostur
Utworzono ofertę pracy13. March 2026
Termin nadsyłania podań23. March 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Ásbyrgi 154070, 671 Kópasker
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe