Heinemann Travel Retail Iceland ehf.
Heinemann Travel Retail Iceland ehf.

Vöruflokkastjóri

Vöruflokkastjóri áfengis, sælgætis og tóbaks (Category Manager LTC) ber ábyrgð á að hámarka sölu og arðsemi tiltekinna vöruflokka í verslunum Ísland Duty Free.
Starfið felur í sér þróun og framkvæmd stefnu fyrir vöruflokkana, samskipti og samstarf við birgja og samstarf við mismunandi deildir og hagsmunaaðila þvert á deildir fyrirtækisins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þróa og innleiða söluáætlanir fyrir vöruflokka, fylgjast með árangri og grípa til leiðréttandi aðgerða með því að framkvæma ítarlega greiningu á sölugögnum, markaðsþróun og frammistöðu vara.
  • Koma á og viðhalda samböndum við innlenda og erlenda birgja. Sjá um samninga í samvinnu við yfirmann vöruflokkastýringar.
  • Skipuleggja og stýra söluaukandi aðgerðum, tryggja árangursríka framkvæmd og eftirfylgni.
  • Þróa áætlanir fyrir framboð og eftirspurn vara, þar með talið kynningar- og söluáætlanir, í samráði við yfirmann vöruflokkastýringar.
  • Aðaltengiliður framkvæmdastjórnar, birgja og annarra hagsmunaaðila varðandi mál tengd vöruflokkunum.
  • Skipuleggja og halda utan um vöruflokkatengda þjálfun starfsfólks, þar með talið leiðbeiningar um æskileg vinnubrögð.
  • Umsjón með uppsetningu deilda til að hámarka upplifun viðskiptavina
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólagráða og reynsla í svipuðu starfi á sviði vöruflokkastýringar eða smásölu, helst með þekkingu á vöruflokkum eins og áfengi, tóbaki og sælgæti.
  • Framúrskarandi færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti, til að eiga árangursrík samskipti í alþjóðlegu umhverfi.
  • Færni í samskiptum við hagsmunaaðila og hæfni til að stuðla að samvinnu á milli deilda.
  • Stefnumiðuð hugsun með getu til að móta og hrinda viðskiptaáætlunum í framkvæmd, auk reynslu af gerð söluáætlana, eftirfylgni og leiðréttandi aðgerðum.
  • Reynsla í að nýta gögn við ákvörðunartöku, ásamt lausnamiðaðri og framsækinni nálgun við úrlausn  verkefna.
  • Reynsla af skipulagningu og framkvæmd söluaukandi verkefna með skipulögðum og öguðum vinnubrögðum. Þekking á SAP og Microsoft Office er kostur.
Utworzono ofertę pracy4. June 2025
Termin nadsyłania podań22. June 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Bez kryminalnej przeszłościPathCreated with Sketch.KreatywnośćPathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.Zdefiniowanie grupy docelowejPathCreated with Sketch.Zarządzanie marką
Zawody
Oznaczenia