Avians
Avians
Avians

Viltu vinna með upplýsingar sem flugið treystir á?

Vilt þú taka þátt í að tryggja að flugmenn, flugrekendur, flugumferðarstjórn og aðrir aðilar fluggeirans hafi aðgang að áreiðanlegum og uppfærðum upplýsingum?

Avians leitar að öflugum og metnaðarfullum sérfræðingi til að leiða útgáfu og þróun Flugmálahandbókar Íslands (AIP Iceland) og taka þátt í fjölbreyttum verkefnum á sviði flugmálaupplýsinga, gagnastjórnunar og gæðaeftirlits.

Við leitum að nákvæmum, ábyrgum og skipulögðum einstaklingi sem hefur áhuga á að vinna með gögn og upplýsingar, á auðvelt með samskipti og samstarf, getur forgangsraðað verkefnum og unnið sjálfstætt.

Um er að ræða sérhæft og mikilvægt starf þar sem nákvæmni, fagmennska og gott skipulag skipta sköpum. Starfið veitir einstakt tækifæri til að starfa á sviði flugöryggis og upplýsingastjórnunar í nánu samstarfi við sérfræðinga innan- og utanlands.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stýra útgáfu og viðhaldi Flugmálahandbókar Íslands (AIP Iceland), viðbóta og upplýsingabréfa.
  • Skipuleggja og samhæfa útgáfuferli flugmálaupplýsinga.
  • Hafa umsjón með rafrænni útgáfu og vef Flugmálahandbókar Íslands.
  • Halda utan um samskipti og samstarf við gagnaveitendur og aðra hagaðila.
  • Veita ráðgjöf og þjálfun til tengiliða.
  • Tryggja að útgáfa og meðhöndlun flugmálaupplýsinga uppfylli kröfur reglugerða, staðla og verklags.
  • Vinna með gagnagrunna flugmálaupplýsinga og yfirfara upplýsingar fyrir útgáfu.
  • Viðhalda verklagsreglum og vinnuleiðbeiningum í gæðakerfi Avians.
  • Taka þátt í þróun og umbótum á ferlum og verklagi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti.
  • Þekking á flugmálum eða flugleiðsögu er kostur.
  • Reynsla af gagnastjórnun, gagnagæðum eða gæðamálum er kostur.
  • Þekking á útgáfu flugmálaupplýsinga (AIS/AIM) er kostur.
  • Reynsla af reglustýrðu starfsumhverfi er kostur.
    Utworzono ofertę pracy10. September 2026
    Termin nadsyłania podań21. September 2026
    Znajomość języków
    AngielskiAngielski
    Wymagane
    Doskonale
    islandzkiislandzki
    Wymagane
    Doskonale
    Lokalizacja
    Nauthólsvegur 66, 102 Reykjavík
    Rodzaj pracy
    Kompetencje
    PathCreated with Sketch.AmbicjaPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.OrganizacjaPathCreated with Sketch.SkrupulatnośćPathCreated with Sketch.Nastawienie do klienta
    Zawody
    Tagi zawodowe