
Sérfræðingur í landupplýsingakerfum
Landmótun auglýsir eftir sérfræðingi í landupplýsingakerfum og með reynslu af skipulagsmálum. Leitað er að fjölhæfum og lausnamiðuðum aðila til að sjá um gerð, greiningar á landfræðilegum gögnum ásamt framsetningu á skipulagsgögnum.
· Greining og framsetning landfræðilegra gagna í tengslum við sipulagsvinnu.
· Notkun landupplýsingakerfa við skipulagsgerð.
· Kynning og framsetning gagna.
· Gerð merkjalýsinga.
· Meistaragráða í landfræðilegum upplýsingakerfum, skipulagsfræðum, landslagsarkitektúr, landfræði eða sambærileg menntun.
· Góðan skilning og reynslu af landupplýsingakerfum.
· Löggilding í merkjalýsingum er æskileg.
· Reynsla af skipulagsvinnu kostur.
· Gott vald á íslenskri tungu og framsetningu á texta og kynningarefni.
· Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
