Orkuveitan
Orkuveitan
Orkuveitan

Auðlindaleiðtogi háhita

Viltu móta hvernig við nýtum jarðhitann til að sjá samfélaginu fyrir rafmagni og heitu vatni til framtíðar?

Auðlindaleiðtogi háhita leiðir og samræmir faglega auðlindastýringu háhitasvæða innan Orkuveitunnar, með það að markmiði að tryggja ábyrga nýtingu jarðhitaauðlinda til framtíðar..

Starfið sameinar faglega forystu, gagnagreiningu og hagnýta ráðgjöf um nýtingu jarðhitaauðlinda. Auðlindaleiðtoginn hefur heildarsýn yfir stöðu og þróun háhitaauðlinda og vinnur sjálfstætt að greiningu og miðlun upplýsinga sem styðja við upplýsta ákvarðanatöku um rekstur, nýtingu og framtíðarþróun þeirra.

Starfið gegnir jafnframt lykilhlutverki í daglegu samstarfi Rannsókna og nýsköpunar (RoN) og Orku náttúrunnar (ON) um háhitaauðlindir.

Helstu viðfangsefni

Auðlindaleiðtogi háhita leiðir faglega auðlindastýringu háhitasvæða og nýtir rannsóknir og vinnslugögn til að móta tillögur sem styðja bæði daglegan rekstur virkjana og ábyrga nýtingu jarðhitans til lengri tíma.

  • Fagleg forysta yfir háhitasvæðum í nýtingu. Auðlindaleiðtoginn hefur heildaryfirsýn yfir stöðu og þróun háhitaauðlinda og leiðir forgangsröðun rannsókna, vöktunar og greininga með ábyrga nýtingu að leiðarljósi. Starfið felur meðal annars í sér sjálfstæða greiningu og túlkun vinnslugagna, gerð forða- og dvínunarspáa og mat á áhrifum mismunandi nýtingarsviðsmynda á framboð gufu og skiljuvatns til virkjana.
  • Samhæfing þvert á rannsóknir og rekstur. Auðlindaleiðtoginn leiðir daglegt samstarf við rekstraraðila virkjana og samhæfir framlag sérfræðiteyma RoN þannig að rannsóknir og ráðgjöf taki mið af þörfum rekstrar og framtíðaruppbyggingar. Starfið felur meðal annars í sér þátttöku í mati á holukostum, boráætlunum, niðurdælingu og framtíðarþróun háhitasvæða.
  • Áhrif frá daglegum rekstri til langtímastefnu. Auðlindaleiðtoginn greinir frávik og áhættur í daglegri nýtingu auðlinda, mótar tillögur um viðbrögð og umbætur og fylgir þeim eftir í samstarfi við nýtingaraðila. Starfið felur jafnframt í sér að samþætta og miðla niðurstöðum um stöðu, vinnslugetu og framtíðarhorfur auðlindanna á skýran og aðgengilegan hátt til stuðnings rekstrarákvörðunum og mótun langtímaáætlana.

Hæfni og þekking sem hlutverkið gerir kröfu um

  • Góð þekking á jarðhita og skilningur á nýtingu, rekstri og þróun háhitaauðlinda er krafa
  • Sterk greiningarhæfni og færni í að vinna sjálfstætt með umfangsmikil og fjölbreytt gögn, draga fram lykilupplýsingar og túlka niðurstöður.
  • Hæfni til að tengja saman upplýsingar um ástand auðlinda, vinnslu og rekstur virkjana og meta áhrif mismunandi nýtingarsviðsmynda er mikilvæg.
  • Hæfni til að styðja ákvarðanir með gögnum og miðla tæknilegum upplýsingum skýrt og sjónrænt. Þekking á forritun, gagnavinnslu og hagnýtingu gervigreindar er mikill kostur.
  • Hæfni til að leiða þverfaglegt samstarf, forgangsraða verkefnum og tryggja framgang þeirra.
  • Öflug samskiptahæfni og færni til að byggja upp traust, skapa samstöðu og samræma sjónarmið ólíkra aðila.
  • Sjálfstæði, frumkvæði og hæfni til að taka faglega afstöðu og fylgja henni eftir.

Menntun og réttindi

  • Háskólamenntun á sviði jarðvísinda, verkfræði, orkuvísinda eða skyldra greina.

Orkuveitan samanstendur af fimm fyrirtækjum; móðurfélagi, Veitum, Orku náttúrunnar, Ljósleiðaranum og Carbfix og hefur það hlutverk að auka lífsgæði með samfélagsábyrgð að leiðarljósi.

Rannsóknar- og nýsköpunarsvið Orkuveitunnar er öflugt og samhent teymi sem horfir til langs tíma í starfsemi félagsins. Teymið tryggir, verndar og treystir ábyrga og sporlausa nýtingu auðlinda okkar á grunni umfangsmikils rannsóknar- og nýsköpunarstarfs. Sviðið ber m.a. ábyrgð á vöktun og stýringu auðlindanýtingar hjá Veitum og Orku náttúrunnar, öflun nýrra orkukosta og neysluvatnsauðlinda og tekur þátt í alþjóðlegum nýsköpunarverkefnum og rannsóknarsamstarfi.

Áhersla er nú á að afla aukinnar orku úr jarðhita bæði fyrir framleiðslu á rafmagni og heitu vatni með það markmið að viðhalda þeim grunni lífsgæða sem við þekkjum í dag.

Hvernig vinnustaður er Orkuveitan? (kynningarmyndband)

Við tökum jafnréttið alvarlega og viljum hafa sem fjölbreyttastan hóp starfsfólks og hvetjum því öll kyn til að sækja um starfið.

Umsóknarfrestur er til og með 16.desember 2026

Nánari upplýsingar veitir Marta Rós Karlsdóttir Forstöðumaður auðlindastýringar jarðhita, [email protected]

Utworzono ofertę pracy27. November 2026
Termin nadsyłania podań16. December 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Rodzaj pracy
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe