
Olís ehf.
Hjá Olís er lögð áhersla á góðan aðbúnað starfsfólks, uppbyggileg samskipti og fagleg vinnubrögð. Markmið fyrirtækisins er að skapa öruggt og jákvætt starfsumhverfi þar sem starfsfólk fær tækifæri til starfsþróunar og símenntunar. Jafnframt er lögð áhersla á gott viðmót, framúrskarandi þjónustu, jafnrétti og virðingu fyrir öllum starfsmönnum.

VIÐSKIPTASTJÓRI Á FYRIRTÆKJASVIÐI OLÍS
Ertu drífandi og lausnamiðuð manneskja með gott auga fyrir viðskiptasamböndum? Olís, eitt rótgrónasta fyrirtæki landsins, leitar að öflugum liðsfélaga í hóp viðskiptastjóra á fyrirtækjasviði.
Í starfinu felst tækifæri til að byggja upp og rækta langtímasambönd við fjölbreyttan hóp fyrirtækja um allt land. Þú færð sjálfstæði til að stýra þínu svæði og viðskiptavinum, í nánu samstarfi við aðra viðskiptastjóra og sviðsstjóra fyrirtækjasviðs — í umhverfi þar sem frumkvæði og reynsla eru metin að verðleikum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sala á fjölbreyttum vörum sem Olís býður fyrirtækjum
- Ráðgjöf til viðskiptavina, gerð tilboða og samningagerð
- Ræktun og viðhald viðskiptasambanda með reglulegum heimsóknum og eftirfylgni
- Leit að nýjum sóknarfærum og virk öflun nýrra viðskiptavina
- Skráning og utanumhald viðskiptavina í CRM-kerfi
- Samstarf við aðrar deildir félagsins
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði viðskiptafræði eða sambærilegt
- Reynslu af sambærilegu starfi er kostur
- Góða almenna tölvuþekkingu og reynslu af CRM-kerfum er kostur
- Frumkvæði, sjálfstæði og árangursdrifni
- Ríka samskiptafærni og jákvætt viðhorf
- Góða íslenskukunnáttu
Fríðindi í starfi
- Aðgangur að Velferðarþjónustu
- Afsláttarkjör hjá Olís
- Styrkur til heilsueflingar
- Gott starfsumhverfi þar sem lögð er áhersla á uppbyggileg samskipti, fagleg vinnubrögð og góðan aðbúnað starfsfólks
Utworzono ofertę pracy25. September 2026
Termin nadsyłania podań8. October 2026
Znajomość języków
islandzkiWymagane
AngielskiWymagane
Lokalizacja
Skútuvogur 5, 104 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
Specjalista ds. administracji biznesowej
Zawody
Tagi zawodowe
Więcej ofert pracy (2)
Podobne oferty pracy (12)

Bókari,launafulltrúi
Vörukaup ehf

Samskiptastjóri
BRÚ Lífeyrissjóður

Blaðamaður á Viðskiptablaðinu
Viðskiptablaðið

Sérfræðingur í innkaupum
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Innkaupastjóri/Purchasing Manager
Nicopods ehf

Business Central Specialist
Embla Medical | Össur

Starf endurskoðanda
Ríkisendurskoðun

Office & Operations Coordinator
Treble Technologies

Forstöðumaður Executive MBA náms í viðskipta- og hagfræðideild
Háskólinn í Reykjavík

Teymisstjóri launaþjónustu hjá ECIT
ECIT

Sjóðstjóri hlutabréfasjóða hjá Íslandssjóðum
Íslandssjóðir

Fulltrúi á fjármálasviði / Bookkeeper
Rapyd Europe hf.