

Vestmannaeyjar - Meiraprófsbílstjóri
Skeljungur óskar eftir að ráða meiraprófsbílstjóra til starfa í Vestmannaeyjum til að sinna afgreiðslu, dælingu og dreifingu eldsneytis. Ásamt öðrum tilfallandi verkefnum sem falla undir starfssvið dreifingar Skeljungs.
Skeljungur sér um dreifingu, innkaup og heildsölu á eldsneyti, smurolíu, hreinsi- og efnavörum, áburði sem og öðrum vörum og þjónustuþáttum til fyrirtækja og bænda. Þjónusta og sala til stórnotenda, til útgerða, í flug og verktöku er einnighluti af starfseminni.
Hjá Skeljungi starfar fjölbreyttur hópur fólks á öllum aldri. Mannauðurinn er mikilvægasta auðlind Skeljungs. Við berum hag starfsmanna fyrir brjósti og viljum vera í fremstu röð hvað varðar réttindi þeirra, öryggi og starfsumhverfi. Í okkar daglega starfi vinnum við eftir kjarnagildum okkar, við erum jákvæði, við erum tilbúin í breytingar og við erum metnaðarfull.
- Meirapróf C og CF er skilyrði
- ADR réttindi
- Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Reynsla af akstri kostur
- Góð íslenskukunnátta æskileg
- Samviskusemi, stundvísi og reglusemi












