Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Verkstjóri garðyrkju - Þjónustumiðstöð

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða verkstjóra í garðykju hjá þjónustumiðstöð. Þjónustumiðstöð heyrir undir umhverfis- og skipulagssvið og er staðsett að Norðurhellu 2. Um er að ræða 100% starf.

Í þjónustumiðstöð Hafnarfjarðar eru 20 stöðugildi og starfa starfsmenn við mjög fjölbreytt viðhaldsverkefni á svæðum bæjarins sem og við stofnanir.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Kemur að verkstýringu á tækjamönnum, öðru starfsfólki og verktökum sem við á, t.d. sumarstarfsmönnum. Ber ábyrgð á þeim verkefnum sem honum er falið hverju sinni
  • Viðhald, eftirlit og umsjón með gróðri á opnum svæðum. Kemur að vali á plöntum og ráðgjöf um gróður, jarðveg og umhirðu
  • Viðhald, eftirlit og umhirða á gróðri á opnum svæðum
  • Viðhald, viðgerðir og eftirlit á útibekkjum, borðum og bekkjum, flaggstöngum, fánaborgum, trjágrindum og uppbindingum o.fl.
  • Ýmis vinna vegna jólaskreytinga, hátíðarhalda, kosninga og ýmissa viðburða á vegum bæjarins
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Sveinpróf í skrúðgarðyrkju/garðyrkju
  • Reynsla af sambærilegum störfum svo sem garðyrkju- og umhverfisstörfum
  • Reynsla af stjórnunarstörfum kostur
  • Reynsla af akstri stærri ökutækja og vinnuvéla
  • Líkamlega fær um að sinna þeim verkefnum sem starfið felur í sér og hæfni til að aðlagast breyttum aðstæðum
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í orði og riti
  • Aukin ökuréttindi á vörubifreið yfir 3.500 kg kostur.
  • Vinnuvélaréttindi á stærri tæki

Hafsteinn Viktorsson, forstöðumaður þjónustumiðstöðvar, í síma 585-5670 eða í gegnum tölvupóst: [email protected]

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 25.09.2026.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Utworzono ofertę pracy10. September 2026
Termin nadsyłania podań25. September 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
AngielskiAngielski
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Norðurhella 2, 221 Hafnarfjörður
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe