Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Verkefnastjóri skipulags- og byggingarmála

Hafnarfjarðarbær leitar að verkefnastjóra skipulags- og byggingarmála á umhverfis- og skipulagssviði. Starfið felur í sér að stuðla að faglegri, skilvirkri og vandaðri meðferð byggingarmála, með áherslu á yfirferð hönnunargagna, byggingarúttektir og eftirlit með mannvirkjagerð. Verkefnastjóri kemur jafnframt að gerð aðal- og deiliskipulags og vinnur undir stjórn skipulags- og byggingarfulltrúa. Starfið er bæði skrifstofustarf og starf á vettvangi, með fjölbreyttum samskiptum við íbúa, hönnuði og aðra hagsmunaaðila.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Þátttaka í gerð aðal- og deiliskipulagsáætlana, undirbúningi þeirra og framkvæmd í samræmi við skipulagslög
  • Yfirferð aðaluppdrátta, byggingarlýsinga, skráningartaflna, stærðarútreikninga og annarra fylgigagna byggingarleyfisumsókna og undirbúningur mála til afgreiðslu hjá skipulags- og byggingarfulltrúa
  • Skoðun hönnunargagna samkvæmt viðeigandi skoðunarlistum HMS og eftirfylgni með nauðsynlegum leiðréttingum í samskiptum við hönnuði
  • Framkvæmd lögbundinna áfangaúttekta, öryggisúttekta og lokaúttekta í samræmi við hæfi og heimildir starfsmanns, ásamt vettvangsskoðunum vegna framkvæmda og ábendinga um möguleg frávik
  • Leiðbeiningar til hönnuða, byggingarstjóra, iðnmeistara og umsækjenda um kröfur og málsmeðferð, ásamt samskiptum við íbúa og aðra hagsmunaaðila
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Löggiltur skipulagsfræðingur eða sambærileg menntun og sérhæfing á sviði skipulagsmála, sbr. 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
  • Löggilding sem hönnuður samkvæmt 25. gr. mannvirkjalaga
  • Heimild ráðherra til starfsheitisins samkvæmt lögum um löggildingu starfsheita sérfræðinga í tækni- og hönnunargreinum nr. 8/2010
  • Góð reynsla af störfum á sviði skipulags- og byggingarmála og víðtæk reynsla af starfsumhverfi opinberrar stjórnsýslu
  • Reynsla og þekking til að framkvæma öryggisúttektir og lokaúttektir. Hæfi aðstoðarmanns II samkvæmt 21. gr. laga um mannvirki er æskilegt
  • Reynsla af verkefnastjórnun og utanumhaldi verkefna
  • Góð þekking á lögum um mannvirki og byggingarreglugerð, ásamt þekkingu á gerð og lestri aðal- og séruppdrátta
  • Framúrskarandi samskiptahæfni, teymishugsun og góð reynsla af því að skapa jákvæða upplifun í samskiptum og þjónustu
  • Góð ritfærni og góð íslensku- og enskukunnátta
  • Góð tölvukunnátta og færni í helstu forritum tengdum skipulagsvinnu

Nánari upplýsingar veitir Axel R. Överby skipulags- og byggingarfulltrúi, [email protected] eða Sigurður Haraldsson sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs, [email protected].

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til og með 7. desember 2026

Umsókn þarf að fylgja greinargóð starfsferilskrá ásamt prófskírteini.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Utworzono ofertę pracy26. November 2026
Termin nadsyłania podań7. December 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Norðurhella 2, 221 Hafnarfjörður
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe