Slippurinn Akureyri ehf.
Slippurinn Akureyri ehf.
Slippurinn Akureyri ehf.

Verkefnastjóri - Skipaþjónusta

Við leitum að öflugum og lausnamiðuðum verkefnastjóra á skipaþjónustusviði okkar. Í starfinu berðu ábyrgð á að leiða fjölbreytt og krefjandi verkefni frá upphafi til enda, með áherslu á gæði, tímanýtingu og hagkvæmni. Við leitum að einstaklingi sem getur tekið af skarið, forgangsraðað vel og byggt upp sterk samskipti við viðskiptavini og samstarfsaðila.

Ef þú ert metnaðarfull/ur og hefur áhuga á skipaiðnaði og verkefnastjórnun, þá viljum við heyra frá þér!

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stýring verkefna í skipaþjónustu frá upphafi þeirra til loka.
  • Fagleg samskipti við viðskiptavini, birgja og undirverktaka.
  • Kostnaðargreiningar og gerð samkeppnishæfra tilboða í DK.
  • Ítarleg áætlanagerð og skilvirk nýting mannafla og aðfanga, unnið í Asana.
  • Skipulagning og forgangsröðun verkefna til að tryggja hámarksafköst.
  • Virk eftirfylgni með framvindu og fjárhag verkefna, ásamt gerð uppgjöra.
  • Gæðaeftirlit og trygging þess að verk standist kröfur viðskiptavina og gildandi staðla.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði verkefnastjórnunar, iðnaðar, rekstrar eða sambærilegra greina.
  • Reynsla af verkefnastjórnun í iðnaði eða skipaþjónustu er mikill kostur.
  • Þekking á skipaiðnaði er æskileg en ekki skilyrði.
  • Framúrskarandi skipulagshæfni og geta til að vinna undir álagi.
  • Sjálfstæð og lausnamiðuð vinnubrögð.
  • Frábær samskiptahæfni og færni í að byggja upp traust við viðskiptavini.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti.
Utworzono ofertę pracy25. November 2025
Termin nadsyłania podań31. December 2025
Znajomość języków
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Naustatangi 2, 600 Akureyri
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.PlanowaniePathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.SumiennośćPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.OrganizacjaPathCreated with Sketch.PunktualnośćPathCreated with Sketch.Praca zespołowaPathCreated with Sketch.Sprawozdanie finansowePathCreated with Sketch.Zarządzanie projektemPathCreated with Sketch.praca pod presjąPathCreated with Sketch.Nastawienie do klienta
Zawody
Tagi zawodowe