Atlantik
Atlantik
Atlantik

Verkefnastjóri með reynslu í hvata- og viðburðateymi

Atlantik leikar að öflugum og skipulögðum verkefnastjóra með viðeigandi reynslu í hvata- og viðburðateymið okkar (MICE). Starfið er fjölbreytt, skemmtilegt og krefjandi, og hentar einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á ferðaþjónustu, viðburðahaldi og framúrskarandi þjónustu.

Sem verkefnastjóri berð þú ábyrgð á þínum verkefnum frá upphafi til enda – frá hönnun og skipulagningu ferða til framkvæmdar og eftirvinnslu. Þú vinnur í nánu samstarfi við aðra verkefnastjóra, bæði með því að leita eftir og veita stuðning þegar þörf krefur.

Gildi Atlantik eru fagmennska, frumkvæði, teymisvinna og virðing. Gildin okkar er grunnurinn að því hvernig við vinnum saman, þjónustum viðskiptavini okkar og byggjum upp sterka vinnustaðamenningu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hönnun ferða, tilboðsgerð, úrvinnsla, skipulagning, framkvæmd og eftirvinnsla hvataferða, viðburða, ráðstefna og sérsniðinna ferðalausna innanlands
  • Gerð framkvæmdaráætlana og eftirfylgni verkefna frá upphafi til enda
  • Þátttaka í vöruþróun og hugmyndavinnu um nýjungar í ferðaþjónustu
  • Teymisvinna og aðstoð við verkefni annarra verkefnastjóra innan teymis á álagstímum 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Að lágmarki 2 ára reynsla í viðburðastjórnun 
  • Reynsla af ferðaþjónustu er skilyrði
  • Góð þekking á Íslandi og framboði ferðaþjónustu innanlands
  • Góð tölvufærni, sérstaklega í Microsoft Office, og reynsla af öðrum kerfum er kostur
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum, skipulagshæfni og nákvæmni
  • Framúrskarandi þjónustulund, sveigjanleiki og geta til að vinna undir álagi á annasömum tímabilum
  • Skapandi hugsun, útsjónasemi og jákvætt viðmót gagnvart viðskiptavinum, birgjum og samstarfsfólki 
Fríðindi í starfi
  • Faglegt, skemmtilegt og hlýlegt vinnuumhverfi
  • Tækifæri til að hafa áhrif og taka þátt í þróun nýrra ferla 
  • Fjölbreytt og lærdómsrík verkefni
  • Tækifæri til starfsþróunar og að vaxa í starfi
  • Öflugt félagslíf og reglulegir viðburðir
  • Aðgengi að fræðslu og þjálfun
  • Góð vinnuaðstaða og sveigjanlegur vinnutími
  • Ýmis fríðindi tengd ferðaþjónustu innanlands 
Utworzono ofertę pracy27. August 2026
Termin nadsyłania podań20. September 2026
Znajomość języków
AngielskiAngielski
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Suðurlandsbraut 4A, 108 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.RzetelnośćPathCreated with Sketch.ProfesjonalnośćPathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.UczciwośćPathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.Komunikacja telefonicznaPathCreated with Sketch.Komunikacja przez e-mailPathCreated with Sketch.SumiennośćPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.Organizacja
Zawody
Tagi zawodowe