Sláturhúsið menningarmiðstöð
Sláturhúsið menningarmiðstöð
Sláturhúsið menningarmiðstöð

Verkefnastjóri fræðslu og miðlunar

Sláturhúsið menningarmiðstöð auglýsir eftir starfsmanni í nýja stöðu verkefnastjóra fræðslu og miðlunar. Starfshlutfall er 50% Starfið er laust nú þegar og upphaf starfs er samkomulagsatriði.

Sláturhúsið menningarmiðstöð er miðstöð sviðslista á Austurlandi og leggur áherslu áverkefni sem tengjast sviðslistum (performing arts) á einn eða annan hátt. Við leggjum ríka áherslu á fræðslustarf fyrir börn og ungmenni með bæði námskeiðum og þáttökuverkefnum.Sláturhúsið framleiðir eigin sviðslistaverk í samstarfi við sjálfstæða leikhópa ásamt því að vera vettvangur fyrir sýningar, þróun verkefna, æfingaferli og rannsóknarvinnu sviðslistafólks.

Sláturhúsið hefur jafnframt frábæra sýningaraðstöðu fyrir myndlist og árlega setjum við upp 6-8 sýningar. Sláturhúsið er einnig vattvangur fyrir tónlist og tónlistarfólk með bæði tónleikaaðstöðu og aðstöðu til æfinga.

Á komandi starfsári ætlum við að að efla og móta enn betur verkefni miðstöðvarinnar, meðal annars listamannadvölina og þróunarstarf innan sviðslista. Viðkomandi starfsmaður mun taka þátt í þeirri stefnumótun og því æskilegt að viðkomandi hafi einhverja reynslu af slíkri vinnu.

Gera má ráð fyrir að vinnutími sé stundum á kvöldin eða um helgar.

Næsti yfirmaður er forstöðumaður Sláturhússins menningarmiðstöðvar

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með fræðslustarfi Sláturhússins.

  • Gerð fræðsluefnis um sýningar Sláturhússins í samstarfi við listafólk.  

  • Móttaka skólahópa og annarra hópa.  

  • Umsjón með kynningarmálum Sláturhússins, þar með talið vef og samfélagmiðlum í samstarfi við forstöðumann.

  • Undirbúningur og hugmyndavinna í tengslum við BRAS, menningarhátíð barna og ungmenna á Austurlandi og seta í stýrihópi hátíðarinnar fyrir hönd Sláturhússins.  

  • Aðstoð og stuðningur við uppsetningu sýninga, undirbúning viðburða og önnur tilfallandi verkefni í Sláturhúsinu.  

  • Þáttaka í þróun og mótun verkefna Sláturhússins.  

  • Aðstoð við listafólk í vinnustofudvöl.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi æskileg s.s. í listgreinum, verkefnastjórn eða menningarmiðlun. 
  • Reynsla af vinnu við lista- og eða menningarstofnanir er æskileg. 
  • Reynsla af störfum með börnum og ungmennum. 
  • Reynsla af kynningarmálum er æskileg.  

    • Gott vald á íslensku og ensku talmáli er æskilegt.
    • Góð almenn tölvukunnátta.  

    • Nákvæmni, samviskusemi og góð samskiptafærni. 

    • Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði.

    • Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára. 

    • Hreint sakavottorð.

Utworzono ofertę pracy12. June 2026
Termin nadsyłania podań26. June 2026
Znajomość języków
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Kaupvangur 9, 700 Egilsstaðir
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.PrecyzjaPathCreated with Sketch.SumiennośćPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.OrganizacjaPathCreated with Sketch.Zarządzanie projektemPathCreated with Sketch.Nastawienie do klienta
Środowisko pracy
Odpowiada
Zawody
Tagi zawodowe