

Vefstjóri
Háskólasetur Vestfjarða leitar að frumlegum, metnaðarfullum vefstjóra í 40% starf.
Vefstjóri hefur umsjón með öllu sem viðkemur vefmálum Háskólaseturs, þar með talið umsjón með þróun og uppbyggingu vefsíðu og fréttaöflun og fréttaskrifum á vefsíðu, samskipti við fjölmiðla og önnur tilfallandi störf sem snúa að kynningarmálum og innra starfi Háskólasetursins.
Okkur vantar góðan penna sem kann að skrifa jafnt fyrir Vestfirðinga og alþjóðlegt háskóla- og rannsóknarumhverfi. Við leitum að lausnamiðuðum og skapandi einstaklingi sem á auðvelt með að vinna sjálfstætt og brennur fyrir að kynna alþjóðlegt háskólalíf á Ísafirði.
- Efnisgerð fyrir vefsíðu, blog, fréttatilkynningar o.fl.
- Samskipti við fjölmiðla og upplýsingagjöf
- Textagerð, yfirlestur og ritstjórn efnis á íslensku og ensku
- Vefumsjón og vefþróun
- Samskipti við vefforritara
- Samstarf við markaðsstjóra og stuðningur við markaðsherferðir
- Verkefnastjórn og önnur tilfallandi störf
- Þekking og reynsla af fréttaöflun og fréttaskrifum
-
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
-
Þekking og reynsla af vefumsjón
-
Reynsla af markaðsstarfi, stafrænni markaðssetningu og samfélagsmiðlum kostur
-
Skipulagshæfni og hæfni til að vinna sjálfstætt
-
Færni í samskiptum
-
Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti

