
Heinemann Travel Retail Iceland ehf.
Verslunin á Keflavíkurflugvelli hefur í áratugi verið hluti af ferðalagi fólks til og frá Íslandi. Í maí 2025 tók Ísland Duty Free við rekstrinum af Fríhöfninni og þar með hófst nýr kafli á sterkum grunni. Við tökum á móti hundruðum þúsunda ferðalanga á hverju ári og fyrir marga eru verslanir okkar bæði fyrsta og síðasta viðkoman á landinu. Við erum því ekki bara verslun, heldur hlið inn í Ísland og út í heim.
Ísland Duty Free er hluti af Gebr. Heinemann, þýsku fjölskyldufyrirtæki með höfuðstöðvar í Hamborg sem hefur starfað í ferðaverslun frá árinu 1879 og er í dag eitt af leiðandi fyrirtækjum heims á því sviði. Með því fylgir aðgangur að alþjóðlegri þekkingu, sterkum samböndum við vörumerki og möguleikum til starfsþróunar þvert á landamæri.
Hlutverk okkar er að gera ferðatímann verðmætari með framúrskarandi vöruúrvali, virði og þjónustu. Framtíðarsýn okkar er að skapa eftirminnileg augnablik þar sem Ísland og heimurinn mætast.
Hjá Ísland Duty Free setjum við fólk í fyrsta sæti, erum eitt teymi og gerum vegferð hvers og eins ánægjulega. Við erum ungt fyrirtæki með langa sögu að baki, sem þýðir að fólkið okkar hefur raunveruleg áhrif á það sem við byggjum. Við leggjum áherslu á góða móttöku nýliða, öfluga vöruþekkingu og skýrar starfsþróunarleiðir, meðal annars í gegnum alþjóðlegt tengslanet Heinemann.

Vaktstjóri í verslun
Ísland Duty Free leitar að jákvæðum og þjónustuliprum einstaklingi í öflugt teymi okkar. Við leitum að aðila sem brennur fyrir framúrskarandi þjónustu, hefur sterka söluhæfni og vill skapa eftirminnilega upplifun fyrir ferðamenn.
Um vaktavinnu er að ræða þar sem unnið er á 11 klst. vöktum skv. 2-2-3 vaktafyrirkomulagi.
Við erum hluti af Gebr. Heinemann, fjölskyldufyrirtæki sem starfar á alþjóðlegum markaði. Hjá okkur leggjum við áherslu á góða þjónustu, fjölbreytt vöruúrval og jákvæða upplifun viðskiptavina.
Tilgangur starfsins
- Leitast við að gera ferðamenn að ánægðum og tryggum viðskiptavinum
- Hámarka sölu með framúrskarandi þjónustu
- Vera jákvæður og faglegur fulltrúi Ísland Duty Free
- Stuðla að árangri í sölu, þjónustu, ánægju viðskiptavina og teymisvinnu
Helstu verkefni og ábyrgð
Viðskiptavinir og sala
- Taka á móti viðskiptavinum á persónulegan og virkan hátt
- Veita framúrskarandi þjónustu með góðri samskiptahæfni og vöruþekkingu
- Greina þarfir viðskiptavina og hvetja til frekari kaupa
- Nýta stafrænar lausnir til að styðja við sölustarf
- Fylgja verklagsreglum og staðbundnum kröfum verslunar
Teymisvinna
- Vera virkur og leiðandi í teymisstarfi, styðja og hvetja samstarfsfólk
- Halda uppi opnum og faglegum samskiptum milli söluteymis og stjórnenda
- Deila þekkingu og leggja sitt af mörkum til sameiginlegs árangurs
Gólfstjórn
- Vaktstjóri tryggir hnökralaust flæði í verslun, styður starfsfólk og leysir úr málum sem upp koma í samráði við verslunarstjóra
- Fylgjast með þjónustustigi og sjá um skipulag og verkaskiptingu á vaktinni
- Tryggja að upplýsingagjöf, birgðir og framsetning séu í lagi
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun og reynsla
- Menntun sem nýtist í starfi - verslunarfagnám, nám í sölu og þjónustu eða sambærileg menntun og/eða starfsreynsla.
- Þekking á vöruframboði er kostur
- Góð enskukunnátta; kunnátta í fleiri tungumálum er mikill kostur
Persónulegir eiginleikar
- Opin, jákvæð og þjónustulipur framkoma
- Sterk þjónustulund
- Frábær samskipta- og söluhæfni, góð virk hlustun
- Sjálfstæði og frumkvæði í ákvarðanatöku innan eigin ábyrgðarsviðs
- Markmiðadrifinn liðsfélagi sem nýtur þess að vinna með öðrum
Fríðindi í starfi
- Líkamsræktarstyrkur
- Fríar rútuferðir eða ökutækjastyrkur
- Niðurgreitt mötuneyti
Utworzono ofertę pracy12. November 2026
Termin nadsyłania podań28. November 2026
Znajomość języków
AngielskiWymagane
islandzkiWymagane
Lokalizacja
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Rodzaj pracy
Kompetencje
InicjatywaUczciwośćBez kryminalnej przeszłości
Zawody
Tagi zawodowe
Podobne oferty pracy (12)

Afgreiðsla og almenn verslunarstörf
Bjarnabúð

Kjörbúðin Ólafsfirði verslunarstarf
Kjörbúðin

Sölufulltrúi 66° Norður
66°North

Jólagæsla - Akureyri, Keflavík og Selfoss
Max Security

Fullt starf í þjónustu
Bakarameistarinn

Vaktstjóri á þjónustuborð - Helgarstarf
BAUHAUS slhf.

Starfsmaður óskast í verslun Fyrir Ísland á Keflav.flugvelli
Margt Smátt

Sölufulltrúi 66° Norður Akureyri
66°North

KFC Sundagörðum
KFC ehf.

Leitum að öflugum starfsmanni
Fiskur og félagar ehf.

Staðarskáli - Hrútafirði
N1

Sölu- og þjónustufulltrúi í verslun
Casalísa