Domino's Pizza
Domino's Pizza
Domino's Pizza

Umsjónarmaður bifreiða

Við leitum að sjálfstæðum og lausnamiðuðum einstaklingi sem hefur metnað fyrir því að tryggja gott ástand, reglubundið viðhald og gott utanumhald yfir bílaflota Domino’s. Starfið krefst góðrar skipulagshæfni, samskiptahæfni og þjónustulundar, þar sem viðkomandi mun starfa þvert á fyrirtækið.

Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af rekstri eða viðhaldi ökutækja, iðnmenntun er kostur en ekki skilyrði. Nauðsynlegt er að hafa bílpróf og góð tök á íslensku og ensku. Almenn tölvukunnátta er einnig mikilvæg í starfinu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með daglegu eftirliti og viðhaldi bílaflota Domino’s.
  • Skipuleggur og fylgist með reglubundnum þjónustum og skoðunum.
  • Heldur utan um skráningu og skjölun tengda bifreiðum og viðhaldi.
  • Er tengiliður við þjónustuaðila, verkstæði og tryggingafélög.
  • Sér um öflun tilboða og aðstoðar við kaup á nýjum bifreiðum.
  • Veitir framkvæmdastjóra greinargóðar upplýsingar um stöðu og ástand bílaflotans.
  • Tekur þátt í umbótaverkefnum og þróun á verklagi tengdu bílaflota.
  • Bregst hratt og markvisst við bilanatilkynningum eða atvikum sem upp koma.
  • Starfar þvert á deildir fyrirtækisins í samráði við framkvæmdarstjóra og rekstrardeild.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af rekstri eða viðhaldi ökutækja
  • Iðnmenntun er kostur en ekki skilyrði.
  • Góð kunnátta í íslensku og ensku.
  • Bílpróf er skilyrði.
  • Almenn tölvukunnátta.
Utworzono ofertę pracy26. June 2025
Termin nadsyłania podań14. July 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Lóuhólar 2-6, 111 Reykjavík
Rodzaj pracy
Zawody
Oznaczenia