
Umsjónarkennsla á yngsta stigi
Grunnskólinn í Hveragerði er vel staðsettur í grónu og glæsilegu bæjarfélagi. Í skólanum eru um 480 nemendur og við hann starfar vel hæft og menntað starfsfólk.
Einkunnarorð skólans eru; viska, virðing og vinátta og einkennist daglegt starf skólans af þeim.
Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2026
Starfið hentar öllum kynjum
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands
Umsjónarkennari fylgist náið með námi nemenda sinna og þroska, líðan og almennri velferð, leiðbeinir þeim í námi og starfi, aðstoðar og ráðleggur þeim um persónuleg mál og stuðlar að því að efla samstarf skóla og heimila.
Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
Starfsmenn Hveragerðisbæjar fá frítt í eina bestu sundlaug í heimi - Laugaskarð
islandzki










